Íslenski boltinn

ÍBV yfirgefur Lengjudeildina með sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
ÍBV endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar og mun leika í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili.
ÍBV endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar og mun leika í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili. Mynd/@íbv.fc

Grótta tók á móti ÍBV í lokaumferð Lengjudeildar karla í dag. Sigurður Arnar Magnússon tryggði Eyjamönnum 3-2 sigur þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka eftir að liðið hafði lent 2-1 undir.

Sigurður Grétar Benónýsson kom Ejamönnum yfir strax á annarri mínútu eftir stoðsendingu frá Ísaki Andra Sigurgeirssyni áður en að Björn Axel Guðjónsson jafnaði metin eftir tæplega tuttugu mínútna leik.

Kjartan Kári Halldórsson kom heimamönnum í Gróttu yfir á 29. mínútu, og staðan var því 2-1 í hálfleik.

Arnar Þór Helgason var fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 55. mínútu og stað því jöfn þegar að rúmur hálftími var til leiksloka.

Sigurður Arnar Magnússon tryggði Eyjamönnum svo stigin þrjú á 85. mínútu.

ÍBV endar því tímabilið með 47 stig í öðru sæti deildarinnar og leika í Pepsi Max deildinni að ári. Grótta endar með 35 stig og situr nú í fimmta sæti, en Vestri getur farið upp fyrir þá með því að ná í stig gegn Kórdrengjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×