Svakalegt skot í samskeytin á síðustu stundu (myndskeið)

„Þeir verja hann ekki þarna,“ á vel við um jöfnunarmark Crystal Palace gegn Fulham í Lundúnaslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Útlit var fyrir að skallamark frá Rodrigo Munez myndi færa Fulham öll þrjú stigin en Jeffrey Schlupp tók til sinna ráða rétt fyrir leikslok og jafnaði fyrir Crystal Palace með stórglæsilegu skoti, 1:1.

Sjón er sögu ríkari í meðfylgjandi myndskeiði en mbl.is birtir efni úr enska fótboltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka