Kallar eftir aldurskvóta á listamannalaun Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. janúar 2022 19:30 Sverrir Norland, rithöfundur og listamannalaunaþegi. Skjáskot/Stöð 2 Rithöfundur telur að koma ætti á einhvers konar aldurskvóta við úthlutun listamannalauna. Hann óttast að ungir og efnilegir listamenn leiti á önnur mið, verði kerfið ekki endurskoðað.
Alls fá 236 listamenn úr sex listgreinum úthlutað listamannalaunum í ár. Flestir, eða 80, eru úr hópi rithöfunda og þar af fá tólf full ritlaun í heilt ár. Þetta eru að mestu rótgrónir höfundar á borð við Andra Snæ Magnason, Hallgrím Helgason, Elísabetu Jökulsdóttur og Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur. Þá er vert að geta þess að listamannalaun hækka um 80 þúsund krónur á árinu. Þau verða um 490 þúsund krónur en voru áður um 410 þúsund. Þetta er gjarnan mjög umdeild úthlutun eins og við þekkjum flest og listamennirnir sjálfir hafa einnig verið nokkuð gagnrýnir. Hefur áhyggjur af flótta úr stéttinni Þeirra á meðal er rithöfundurinn Sverrir Norland, sem sjálfur fékk úthlutað þriggja mánaða ritlaunum í ár. Honum þykir ljóst af þessari nýjustu úthlutun að á brattann sé að sækja fyrir yngri höfunda, að eldri höfundunum alveg ólöstuðum. „Og ég hef áhyggjur af því að það mikla hæfileikafólk fari að gera eitthvað annað, fari í tæknibransann eða brenni út,“ segir Sverrir. „Fyrir 20 árum, jafnvel minna voru höfundar á mínum aldri eða yngri að fá launin í heilt ár, jafnvel þrjú ár. Og ég held að það sé ástæðan fyrir því að við eigum svona marga frábæra rithöfunda í dag, að það var hlúð svo vel að þeim snemma.“ Þá bendir Sverrir á að umsóknar- og úthlutunarferlið sé einkar ógagnsætt og enginn rökstuðningur fáist fyrir úthlutuðum mánaðafjölda. Hann fagnar því þó að menningarmálaráðherra hafi ákveðið að hækka launin en mikilvægt sé að fjölga þeim mánuðum sem í boði eru. „Það mætti eyrnamerkja fjörutíu, fimmtíu prósent undir einhverjum aldri. Og svo ef einhver fær launin eitt, tvö þrjú ár í röð þá sé það yfirlýsing, þannig að það sé einhver langtímasýn þarna að baki,“ segir Sverrir.
Listamannalaun Menning Bókmenntir Tengdar fréttir Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna. 13. janúar 2022 07:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna. 13. janúar 2022 07:03