Kominn í Olís deildina eftir hryggbrot og meira en tíu ára fjarveru frá handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2020 14:00 Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hefur stimplað sig inn í Olís deildinni með góðri frammistöðu í vörn Þórsara. Skjámynd/S2 Sport
Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hefur vakið athygli með Þórsliðinu í Olís deild karla í vetur og þá ekki síst fyrir það að hann snéri aftur í handboltann eftir langa fjarveru. Henry Birgir Gunnarsson hitti Þórsarann Aðalsteinn Ernir Bergþórsson á dögunum og sýndi viðtalið við kappann í Seinni bylgjunni í gær. Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hafði ekki spilað í handbolta í tólf ár og ætlaði sér ekki að fara spila aftur eftir að hafa lent í áföllum. Henry Birgir fékk að heyra hans áhugaverðu sögu. Man ekki hvenær hann var síðast í handbolta „Það er svo langt síðan að ég spilaði síðast handbolta að ég varla man það. Það borgar sig kannski ekkert að vera að rifja það upp,“ sagði Aðalsteinn Ernir Bergþórsson léttur í viðtali við Henry Birgir Gunnarsson. Hvar var Aðalsteinn Ernir Bergþórsson að spila áður en hann hætti? „Ég var upp á Brekku og fór svo suður. Ég spilaði aðeins með Gróttu þar en svo fór hugurinn eitthvað annað eins og gengur og gerist. Það var ekki fyrr en Dóri bankaði í mig í fyrra og vildi fá mig á einhverjar æfingar. Núna erum við komnir hingað,“ sagði Aðalsteinn og er þar að tala um Halldór Örn Tryggvason, þjálfara Þórsliðsins, sem kom liðinu upp í Olís deildina fyrir þetta tímabil. „Ég hugsaði þetta svolítið lengi og var frekar þungur í drætti. Mér leist ekkert á þetta en ég hef alltaf verið í ágætis standi og ákvað því að prófa,“ sagði Aðalsteinn sem hefur verið í CrossFit. En er þetta ekki búið að vera gaman? „Jú þegar sársaukinn var að mestu farinn og strengirnir þá fór þetta að vera gaman aftur,“ sagði Aðalsteinn. Slasaðist illa á vélsleða Það má kannski segja að það sé hálfgert kraftaverk að Aðalsteinn sé að spila handbolta því hann slasaðist illa á vélsleða. „Ég lenti í smá óhappi þar. Hryggbrotnaði og fór svona frekar illa. Ég hélt að það yrði ekki á dagskrá að spila handbolta aftur en fyrsta að tækifærið gafst þá var eiginlega ekkert annað hægt en að prófa og láta á það reyna,“ sagði Aðalsteinn sem lenti í slysinu árið 2012. „Í fjóra mánuði þá gerði ég ekkert annað en að liggja og standa. Þá var aðalmarkmiðið að geta gengið og eiga þokkalegt líf. Ég var staðráðinn í því að ég ætlaði að fara í einhverja hreyfingu, CrossFit eða eitthvað svoleiðis. Ég var alveg með það í huganum að þetta myndi ekki stoppa mig í því,“ sagði Aðalsteinn. Það má sjá allt viðtalið við Aðalstein hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Viðtal við Aðalstein Erni Bergþórsson
Olís-deild karla Seinni bylgjan Þór Akureyri Mest lesið Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Sjá meira