Reiður eftir að boltinn fór í hönd Glódísar Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2023 11:31 Glódís Perla Viggósdóttir hafði góða ástæðu til að fagna eftir sigur og frábæran leik gegn Arsenal í gærkvöld. Instagram/@fcbfrauen Glódís Perla Viggósdóttir reyndist fyrrverandi læriföður sínum svo sannarlega erfið með stórleik fyrir Bayern München gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld.
Glódís átti stóran þátt í því að Bayern skyldi ná að halda hreinu í leiknum og vinna 1-0 sigur en ljóst er að forskotið er naumt fyrir seinni leikinn í Lundúnum eftir viku. Jonas Eidevall, þjálfari Arsenal, var hundsvekktur eftir leik í gær. Eidevall, sem þjálfaði Glódísi hjá sænska liðinu Rosengård í nokkur ár, var sérstaklega reiður yfir því að ekki skyldi dæmt víti á Glódísi í fyrri hálfleiknum þegar boltanum var skotið í hönd hennar. Atvikið má sjá hér að neðan en það gerðist eftir sjö mínútna leik. „Hluti af mér er reiður því að augljóslega virkaði VAR ekki hér á Allianz Arena í kvöld,“ sagði Eidevall á blaðamannafundi eftir leik sem taldi Arsenal eiga að fá 1-2 víti í leiknum og að boltinn hefði mögulega farið inn þegar Bayern bjargaði tvisvar á marklínu. Marklínutæknin bara notuð stundum „Það má nota marklínutæknina á öllum stigum keppninnar en það er ekki skylda. Hún var ekki notuð í kvöld því Bayern vildi ekki borga fyrir hana. Í næstu viku verður hún notuð á Emirates því Arsenal ákvað að gera það, því við teljum að það sé sanngjarnt fyrir keppnina. Það er vandamál að það sé ekki sama tækni notuð í öllum leikjum,“ sagði Eidevall. Fannst augljóst að dæma ætti víti á Glódísi Hann taldi Arsenal eiga að fá víti þegar boltinn fór í hönd Glódísar og einnig þegar að hann taldi togað í treyju Rafaelle Souza innan teigs. „Hluti af mér er stoltur en hluti af mér vonsvikinn með að við skyldum ekki nýta færin betur. Hluti af mér er reiður því að augljóslega virkaði VAR ekki hér á Allianz Arena í kvöld. Það hlýtur að vera að einhver sitji þarna og sé ekkert að horfa. Þetta var nefnilega alveg augljóst í þessum tveimur vítadæmum. Mér finnst þetta algjörlega óásættanlegt. Það var togað í treyjuna og svo var hendi í fyrri hálfleiknum. Mér fannst það augljóst. Þessi leikur í kvöld undirstrikaði vandamálin í þessari keppni. VAR kemur bara inn í 8-liða úrslitum og ég veit ekki hvort að dómararnir hafa nokkru sinni notað VAR áður,“ sagði Eidevall sem hyggur á hefndir í næstu viku þegar Arsenal reynir að vinna upp forskot Glódísar og félaga. Átta liða úrslitin halda áfram í kvöld þegar Lyon mætir Chelsea og Íslendingaliðin PSG og Wolfsburg mætast.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Fleiri fréttir Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Sjá meira