Tólf meðlimir trúarhóps handteknir vegna dauða átta ára stúlku Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. júlí 2022 16:03 Hér sést Elizabeth ásamt elstu systur sinni. Tólf meðlimir trúarhóps í Ástralíu hafa verið handteknir í tengslum við andlát átta ára stúlku. Stúlkan, sem var sykursjúk, lést í janúar á þessu ári. Talið er að henni hafi verið neitað um insúlín í tæpa viku.
Fyrr á þessu ári voru foreldrar stúlkunnar, sem hét Elizabeth Struhs, ákærðir fyrir morð, pyntingar og að hafa ekki séð stúlkunni fyrir nauðsynjum sem hún þurfti til þess að lifa af. Nú hefur lögreglan í Ástralíu handtekið tólf til viðbótar tengslum við andlátið. Hin handteknu eru á aldrinum 19 til 64 ára og eru talin hafa verið meðvituð um hrakandi ástand stúlkunnar, en ekkert aðhafst. Báðu fyrir bata Foreldrar Elizabeth, þau Jason og Kerrie Struhs, eru meðlimir í litlum trúarhópi í borginni Toowoomba, sunnan Brisbane, sem tengist ekki stærri kirkju eða trúarhópi. Hin handteknu tilheyra sama hópi. Lögregla segir fólkið hafa beðið fyrir Elizabeth þegar hún tók að veikjast, án þess að aðhafast nokkuð frekar. Yfirvöld voru þá ekki látin vita fyrr en daginn eftir að Elizabeth lést. Breska ríkisútvarpið hefur eftir Jayde, elstu systur Elizabeth, að stórfjölskylda stúlkunnar sé í molum. „Við höfum þurft að horfast í augu við þann kalda veruleika að fólkið sem átti að vernda hana gerði það ekki, og að við munum mögulega aldrei vita nákvæmlega hvað átti sér stað.“ Foreldrar hennar, sem hún var ekki í sambandi við, hafi verið hluti af sértrúarsöfnuði sem var drifinn áfram af ótta og stjórnsemi. Þau tólf sem nú hafa verið handtekin verða leidd fyrir dómara á morgun, en foreldrar Elizabeth eiga að mæta fyrir dóm síðar í þessum mánuði.
Ástralía Erlend sakamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Innlent Fleiri fréttir Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu ISIS birtir hryllingsmyndbönd af árásinni Sjá meira