Þórólfur kominn með örvunarskammt: „Ég er Astra maður þannig að ég er að svíkja lit“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 29. nóvember 2021 12:31 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fékk örvunarskammt af bóluefni Moderna í dag. Þriðja vika örvunarbólusetningarátaks yfirvalda hófst í dag í Laugardalshöll. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir bólusetningarnar ganga vel en sóttvarnalæknir var meðal þeirra sem fengu sinn þriðja skammt í dag.
Alls greindust 95 smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær en af þeim sem greindust voru 42 utan sóttkvíar við greiningu. Um er að ræða þriðja daginn í röð þar sem daglegur fjöldi smitaðra innanlands er undir 100. Fjórtán greindust með virk smit á landamærunum. Nítján eru nú á sjúkrahúsi, tveir eru á gjörgæslu og eru þeir báðir í öndunarvél. Fólk streymdi að Laugardalshöllinni í morgun fyrir örvunarskammt bóluefnis en Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir daginn byrja vel. „Þetta fer bara vel af stað eins og aðra daga og á fyrsta klukkutíma voru komnir um 1500 manns þannig að dagurinn lítur vel út,“ segir Ragnheiður. „Þetta er þriðja vikan sem er að fara af stað núna hjá okkur og fyrstu tvær vikur hafa bara gengið nokkuð vel.“ Síðastliðnar tvær vikur hafa um 20 þúsund manns verið að mæta í örvunarskammt frá mánudegi til miðvikudags á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur fólk einnig geta mætt á fimmtudögum og föstudögum ef þau komast ekki aðra daga og segir Ragnheiður að um þúsund manns mæti þá daga. Hún ítrekar mikilvægi þess að fólk mæti í örvunarskammt þegar þau fá boð. Til stendur að lang flestir muni fá boð í örvunarbólusetningu fyrir jól en þeir sem fengu Janssen og síðan örvun í ágúst, og börn á aldrinum 12 til fimmtán ára, fá boð eftir áramót. Býst ekki við að taka veikindadag á morgun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var meðal þeirra sem mættu í örvunarskammt í morgun. „Tilfinningin er bara mjög góð, ég vona bara að ég verði vel örvaður og að þetta muni hjálpa okkur. Ég hef fulla trú á því,“ segir Þórólfur. Þórólfur var fullbólusettur með AstraZeneca fyrr á árinu og grínaðist með að hann væri að svíkja lit með því að fá Moderna í örvun. „Ég er Astra maður þannig að ég er að svíkja lit og fer núna í Moderna.“ Býstu við að taka veikindadag á morgun? „Nei, ég á ekki von á því,“ segir Þórólfur léttur í bragði.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Reykjavík Tengdar fréttir Mögulegt að slakað verði á sóttkvíarreglum fyrir þríbólusetta Mögulegt er að þeir sem hafa fengið örvunarskammt sleppi við sóttkví ef breytingar sem nú eru til skoðunar koma til framkvæmda. Sóttvarnalæknir segist binda miklar vonir við örvunarbólusetningu. 27. nóvember 2021 12:50 Muni skýrast á næstu vikum hvort herða þurfi aðgerðir vegna Ómíkron Sóttvarnalæknir segir að það muni skýrast á næstu vikum hvort grípa þurfi til frekari aðgerða vegna útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Það eigi enn eftir að koma í ljós hvernig afbrigðið hagar sér en svo virðist sem það sé meira smitandi. 28. nóvember 2021 17:35 Mun að óbreyttu mæla með bólusetningu fimm til ellefu ára Fyrstu skammtar bóluefnis Pfizer gegn kórónuveirunni, sem sérstaklega er gert fyrir ung börn, munu berast hingað til lands í lok desember. Sóttvarnalæknir telur líklegt að börnum á aldrinum fimm til ellefu ára verði boðin bólusetning, nema eitthvað sérstakt mæli gegn því. 26. nóvember 2021 16:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Mögulegt að slakað verði á sóttkvíarreglum fyrir þríbólusetta Mögulegt er að þeir sem hafa fengið örvunarskammt sleppi við sóttkví ef breytingar sem nú eru til skoðunar koma til framkvæmda. Sóttvarnalæknir segist binda miklar vonir við örvunarbólusetningu. 27. nóvember 2021 12:50
Muni skýrast á næstu vikum hvort herða þurfi aðgerðir vegna Ómíkron Sóttvarnalæknir segir að það muni skýrast á næstu vikum hvort grípa þurfi til frekari aðgerða vegna útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Það eigi enn eftir að koma í ljós hvernig afbrigðið hagar sér en svo virðist sem það sé meira smitandi. 28. nóvember 2021 17:35
Mun að óbreyttu mæla með bólusetningu fimm til ellefu ára Fyrstu skammtar bóluefnis Pfizer gegn kórónuveirunni, sem sérstaklega er gert fyrir ung börn, munu berast hingað til lands í lok desember. Sóttvarnalæknir telur líklegt að börnum á aldrinum fimm til ellefu ára verði boðin bólusetning, nema eitthvað sérstakt mæli gegn því. 26. nóvember 2021 16:21