„Er ekki eitthvað vesen í þessum hópi?“ Sindri Sverrisson skrifar 20. september 2021 12:00 Valsmenn byrjuðu tímabilið vel en hefur gengið skelfilega undanfarnar vikur. mynd/Hafliði Breiðfjörð „Maður veit einhvern veginn aldrei hvað gerist á Hlíðarenda. Það gætu verið teknar stórar ákvarðanir þar,“ sagði Reynir Leósson í Pepsi Max-stúkunni þegar talið barst að liði Vals sem átt hefur vonbrigðatímabil á þessu fótboltasumri. Valur tapaði 4-1 gegn KA í gær og þarf að sætta sig við að missa af Evrópusæti, eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í fyrra. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, hefur sagt að ekki standi annað til en að Heimir Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Gengið undanfarnar vikur hefur hins vegar verið skelfilegt og spurning hverju um er að kenna. Reynir sagðist telja farsælast fyrir Val að halda tryggð við Heimi og Atli Viðar Björnsson benti á að stór hluti leikmannahóps Vals væri nú að eiga sams konar vonbrigðatímabil og fyrir tveimur árum. „Ég hef trú á því að Heimir verði áfram þarna og að þeir gefi honum tækifæri til að fara inn í annað tímabil. Hann náði í Íslandsmeistaratitil á sínu fyrsta tímabili, en auðvitað er enginn ánægður með stöðuna eins og hún er. Fimm tapleikir í röð með bikartapinu. Það gerist ekki oft þarna,“ sagði Reynir en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Hvað gerist á Hlíðarenda? „Menn eru að vinna í þessu umhverfi þar sem eru miklir fjármunir, góðir leikmenn fengnir til liðsins og færir þjálfarar. Einn færasti þjálfari liðsins er að stýra liðinu. Það hefur ekki gengið núna en ef ég ætti að ráðfæra þeim, þeir vita náttúrulega mikið meira þarna, þá myndi ég ráðleggja þeim að halda trúnni á Heimi. En ef þeir tapa síðasta leik og ljúka tímabilinu á sex töpum þá gæti þetta orðið ansi þungt,“ sagði Reynir. Þarf að gera eitthvað róttækt þarna Atli Viðar tók þá við boltanum og sagði: „Síðan þurfum við að velta fyrir okkur leikmannahópnum. Þetta er annað árið af síðustu þremur þar sem að tiltölulega svipaður hópur „crashar“. „Feilar“ algjörlega. Þarf ekki að uppræta eitthvað þar líka? Er ekki eitthvað vesen í þessum hópi ef að menn eru ekki að leggja sig fram – kasta til hendinni eins og manni hefur sýnst undanfarið. Það þarf að gera eitthvað róttækt þarna. Gæðin eru til staðar en það eru ekki nema tvö ár síðan að þeir áttu lélegt tímabil í kjölfarið á titli, sem kostaði Óla Jó starfið, og mér finnst svipuð atburðarás vera að eiga sér stað núna. Það þarf að skoða málin út frá öllum hliðum á Hlíðarenda.“ Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Pepsi Max-deild karla Valur Pepsi Max stúkan Tengdar fréttir Ég ræð ekki eða rek þjálfara hjá Val Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap á móti KA er liðin mættust á Origo-vellinum í næst síðustu umferð Pepsi Max deild karla í kvöld. 19. september 2021 21:20 Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 1-4 | Akureyringar láta sig dreyma um Evrópu eftir stórsigur á Hlíðarenda KA vann ótrúlegan 4-1 útisigur á Íslandsmeisturum Vals í síðasta leik dagsins í Pepsi Max deild karla í fótbolta. KA menn láta sig dreyma um sæti í Evrópu að ári liðnu en til þess þurfa Akureyringar að treysta á að Víkingur vinni Mjólkurbikarinn svo 3. sæti deildarinnar veiti þátttöku í Evrópu. 19. september 2021 21:45 Mest lesið Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Haltrandi Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs og Boston tapaði Körfubolti Beverley í fjögurra leikja bann Körfubolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Sveindís hafði betur gegn Glódísi Fótbolti Dagksráin í dag: Fótboltinn í fyrirrúmi Sport Fleiri fréttir Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Sjá meira
Valur tapaði 4-1 gegn KA í gær og þarf að sætta sig við að missa af Evrópusæti, eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í fyrra. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, hefur sagt að ekki standi annað til en að Heimir Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Gengið undanfarnar vikur hefur hins vegar verið skelfilegt og spurning hverju um er að kenna. Reynir sagðist telja farsælast fyrir Val að halda tryggð við Heimi og Atli Viðar Björnsson benti á að stór hluti leikmannahóps Vals væri nú að eiga sams konar vonbrigðatímabil og fyrir tveimur árum. „Ég hef trú á því að Heimir verði áfram þarna og að þeir gefi honum tækifæri til að fara inn í annað tímabil. Hann náði í Íslandsmeistaratitil á sínu fyrsta tímabili, en auðvitað er enginn ánægður með stöðuna eins og hún er. Fimm tapleikir í röð með bikartapinu. Það gerist ekki oft þarna,“ sagði Reynir en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Hvað gerist á Hlíðarenda? „Menn eru að vinna í þessu umhverfi þar sem eru miklir fjármunir, góðir leikmenn fengnir til liðsins og færir þjálfarar. Einn færasti þjálfari liðsins er að stýra liðinu. Það hefur ekki gengið núna en ef ég ætti að ráðfæra þeim, þeir vita náttúrulega mikið meira þarna, þá myndi ég ráðleggja þeim að halda trúnni á Heimi. En ef þeir tapa síðasta leik og ljúka tímabilinu á sex töpum þá gæti þetta orðið ansi þungt,“ sagði Reynir. Þarf að gera eitthvað róttækt þarna Atli Viðar tók þá við boltanum og sagði: „Síðan þurfum við að velta fyrir okkur leikmannahópnum. Þetta er annað árið af síðustu þremur þar sem að tiltölulega svipaður hópur „crashar“. „Feilar“ algjörlega. Þarf ekki að uppræta eitthvað þar líka? Er ekki eitthvað vesen í þessum hópi ef að menn eru ekki að leggja sig fram – kasta til hendinni eins og manni hefur sýnst undanfarið. Það þarf að gera eitthvað róttækt þarna. Gæðin eru til staðar en það eru ekki nema tvö ár síðan að þeir áttu lélegt tímabil í kjölfarið á titli, sem kostaði Óla Jó starfið, og mér finnst svipuð atburðarás vera að eiga sér stað núna. Það þarf að skoða málin út frá öllum hliðum á Hlíðarenda.“ Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max-deild karla Valur Pepsi Max stúkan Tengdar fréttir Ég ræð ekki eða rek þjálfara hjá Val Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap á móti KA er liðin mættust á Origo-vellinum í næst síðustu umferð Pepsi Max deild karla í kvöld. 19. september 2021 21:20 Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 1-4 | Akureyringar láta sig dreyma um Evrópu eftir stórsigur á Hlíðarenda KA vann ótrúlegan 4-1 útisigur á Íslandsmeisturum Vals í síðasta leik dagsins í Pepsi Max deild karla í fótbolta. KA menn láta sig dreyma um sæti í Evrópu að ári liðnu en til þess þurfa Akureyringar að treysta á að Víkingur vinni Mjólkurbikarinn svo 3. sæti deildarinnar veiti þátttöku í Evrópu. 19. september 2021 21:45 Mest lesið Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn Haltrandi Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs og Boston tapaði Körfubolti Beverley í fjögurra leikja bann Körfubolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Sveindís hafði betur gegn Glódísi Fótbolti Dagksráin í dag: Fótboltinn í fyrirrúmi Sport Fleiri fréttir Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Sjá meira
Ég ræð ekki eða rek þjálfara hjá Val Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum svekktur eftir 4-1 tap á móti KA er liðin mættust á Origo-vellinum í næst síðustu umferð Pepsi Max deild karla í kvöld. 19. september 2021 21:20
Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 1-4 | Akureyringar láta sig dreyma um Evrópu eftir stórsigur á Hlíðarenda KA vann ótrúlegan 4-1 útisigur á Íslandsmeisturum Vals í síðasta leik dagsins í Pepsi Max deild karla í fótbolta. KA menn láta sig dreyma um sæti í Evrópu að ári liðnu en til þess þurfa Akureyringar að treysta á að Víkingur vinni Mjólkurbikarinn svo 3. sæti deildarinnar veiti þátttöku í Evrópu. 19. september 2021 21:45
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn
Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Íslenski boltinn