Barbadoseyjar losna úr greipum Elísabetar drottningar Kjartan Kjartansson skrifar 24. nóvember 2021 13:54 Kona gengur undir spjaldi þar sem sjálfstæði Barbados er fagnað. Eyjarnar ætla að fjarlægja Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja á 55 ára sjálfstæðisafmæli sínu. Vísir/Getty Nýtt lýðveldi verður til þegar Barbadoseyjar losa sig við Elísabetu Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja sinn í næstu viku. Þar með lýkur nær endanlega fjögur hundrað ára löngum nýlendutengslum Barbados og Bretlands.
Þrátt fyrir að Barbados hafi lýst yfir sjálfstæði fyrir 55 árum var breski einvaldurinn áfram þjóðhöfðingi eyjanna. Eyjan lenti fyrst undir yfirráðum Englendinga þegar enskir sjómenn lýstu þær eign Jakobs fyrsta Bretakonungs árið 1625. Lýst verður yfir lýðveldinu Barbados við hátíðlega athöfn í Bridgetown að kvöldi 29. nóvember. Karl Bretaprins ætlar að vera viðstaddur hana. Þetta verður í fyrsta skipti í tæp þrjátíu ár sem ríki ákveður að fjarlægja Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja sinn, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Talsmaður bresku krúnunnar segir ákvörðunina alfarið mál íbúa Barbadoseyja. Fimmtán önnur ríki hafa Elísabetu sem þjóðhöfðingja sinn, þar á meðal Ástralía og Kanada. Barbados verður áfram hluti af breska samveldinu sem 54 ríki í Afríku, Asíu, Ameríkunum, Evrópu og Kyrrahafi tilheyra. Lok nýlenduarðráns Spænskir þrælahaldarar hröktu frumbyggja á Barbados í burtu og voru eyjarnar mannlausar þegar Englendingar slógu eign sinni á þær. Þeir fylltu brátt eyjarnar af um 600.000 afrískum þrælum frá 1627 til 1833. Þeir voru látnir þræla á sykurreyrekrum og urðu enskum að féþúfu. Eyjarnar fengu fullveldi árið 1938 og réðu þá plantekrueigendur lögum og lofum en öðluðust ekki sjálfstæði fyrr en árið 1966. „Þetta eru endalok sögu nýlenduaðráns hugans og líkamans. Íbúar þessara eyja hafa barist, ekki aðeins fyrir frelsi og réttlæti, heldur til að losna undan oki heimsvalda- og nýlenduyfirráða,“ segir Hilary Beckles lávarður og prófessor í sögu Barbados. Rætt hefur verið um að fleiri fyrrverandi breska nýlendur gætu fetað í fótspor Barbados, þar á meðal Jamaíka og Sankti Vinsent og Grenadínur.
Barbados Bretland Kóngafólk Elísabet II Bretadrottning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira