„Þetta var eins og það gerist verst“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. september 2022 21:33 Bílarnir eru illa út leiknir eftir glímuna við náttúruöflin í dag. Vilhjálmur Vernharðsson Búið er að koma öllum þeim ferðamönnum sem fastir voru á Möðrudalsöræfum í öruggt skjól. Rúmlega sjötíu erlendir ferðamenn leituðu skjóls í Fjalladýrð í Möðrudal. Staðarhaldarinn þar segir að veðrið á svæðinu hafi verið mun verra en veðurspár sögðu til um. „
Þetta var mikla verra en veðurspáin sagði til um. Þetta var eins og það gerist verst,“ segir Vilhjálmur Vernharðsson, staðarhaldi í Fjalladýrð í Möðrudal. Greint var frá því fyrr í dag að fjölmargir ferðamenn sætu fastir á þjóðveginum um Möðrudalsöræfi. Björgunarsveitir frá Norður- og Austurlandi voru kallaðir til að aðstoða ferðamennina. Vilhjálmur var sá sem fékk fyrst boð um aðstoð, en þegar Vísir náði tali af honum í kvöld hafði hann verið að í nærri átta tíma, frá hádegi. Bílarnir fuku hreinlega.Vilhjálmur Vernharðsson „Ég bý hérna svoleiðis að maður er alltaf fyrstur til. Ég er útbúinn í hvað sem er,“ segir Vilhjálmur sem telur að allt í allt hafi á þriðja hundrað ferðamanna verið komið til aðstoðar. Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitum var nokkrum fjölda fylgt niður í Mývatnssveit þar sem búið er að opna fjöldahjálparstöð fyrir þá sem ekki áttu bókað gistirými þar. Á fimmta tug var fluttur áleiðis til Egilsstaða Fegnir ferðamenn á ónýtum bílum Hjá Vilhjálmi í Fjalladýrð dvelja hins vegar 73 ferðamenn sem áttu ekki í önnur hús að venda eftir óveður dagsins. Mikið hvassviðri var, slydda og krap, auk grjótfoks. Meirihluti þeirra ferðamanna sem þurfti að koma til aðstoðar var á illa búnum bílum miðað við veðuraðstæður. Fjöldi bíla er hreinlega ónýtur eftir daginn. „Þetta var mikla verra en veðurspáin sagði til um. Þetta var eins og það gerist verst. Við erum með sjoppu við gatnamótin. Það eru 25 bílar á planinu þar. Það er nánast enginn einasta rúða í neinum þeirra. Þeir eru allir ónýtir,“ segir Vilhjálmur. Beðinn um að lýsa veðrinu segir hann það erfitt, svo slæmt hafi það verið. „Það er ekkert hægt að lýsa þessu. Þetta er eins og alverst gerir. Það eru sjálfsagt tuttugu og bílar að fara frá okkur á vörubíl. Þeir keyra ekkert, þeir eru ónýtir,“ að sögn Vilhjálms. Mikið grjótfok var sem sprengt hefur rúður og farið illa með lakkið á bílunum sem um ræðir. Grjótfok hefur leikið bílana á svæðinu illa.Vilhjálmur Vernharðsson Þá eru á annan tug bíla enn eftir á víð og dreif við þjóðveginn þar sem ekki var annað hægt en að skilja þá eftir. Þeir sem dvelja hjá Vilhjálmi eru allt erlendir ferðamenn. „Fólk er bara í sjokki en fegið að komið í hús.“
Björgunarsveitir Veður Ferðamennska á Íslandi Samgöngur Óveður 25. september 2022 Tengdar fréttir Telja ekkert kerfi hannað til að ráða við flóðið sem skildi eftir sig mikið tjón Ljóst er að mikið tjón hefur orðið á bæði húsum og búnaði á Oddeyrinni á Akureyri í dag, þar sem sjór gekk á landi í aftakaveðri. Norðurorka segir að ekkert veitukerfi sé hannað til að ráða við aðstæður sem þessar. 25. september 2022 20:10 Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag. 25. september 2022 19:28 Fjölmargir ferðamenn fastir í Mývatnsöræfum Fjöldi ferðamanna situr fastur í bílum sínum í Mývatnsöræfum. Talið er að bílarnir séu 20 til 30 talsins og björgunarsveitir vinna að því að ferja fólkið í öruggt skjól. Um 30 metrar á sekúndu eru á svæðinu og slydda - og skyggni slæmt. 25. september 2022 16:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fleiri fréttir Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Sjá meira
Telja ekkert kerfi hannað til að ráða við flóðið sem skildi eftir sig mikið tjón Ljóst er að mikið tjón hefur orðið á bæði húsum og búnaði á Oddeyrinni á Akureyri í dag, þar sem sjór gekk á landi í aftakaveðri. Norðurorka segir að ekkert veitukerfi sé hannað til að ráða við aðstæður sem þessar. 25. september 2022 20:10
Fyrsta haustlægðin skall með krafti á landið Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast í dag við að bjarga ferðamönnum sem sátu fastir í bílum sínum í veðurofsanum. Rúður hafa brotnað í bílum og tré rifnað upp frá rótum. Það flæddi yfir götur og inn í hús á Akureyri og á stórum hluta landsins varð rafmagnslaust í dag. 25. september 2022 19:28
Fjölmargir ferðamenn fastir í Mývatnsöræfum Fjöldi ferðamanna situr fastur í bílum sínum í Mývatnsöræfum. Talið er að bílarnir séu 20 til 30 talsins og björgunarsveitir vinna að því að ferja fólkið í öruggt skjól. Um 30 metrar á sekúndu eru á svæðinu og slydda - og skyggni slæmt. 25. september 2022 16:05