Gunnhildur Yrsa var orðin þreytt en hlakkar til ævintýrisins með Stjörnunni Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2023 23:31 Gunnhildur Yrsa er komin heim í Stjörnuna. Vísir Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er snúin heim úr atvinnumennsku og spilar með uppeldisfélagi sínu Stjörnunnar á komandi leiktíð. Hún lítur bjartsýnisaugum á framtíðina hér heima. „
Ég var náttúrulega með samning úti og þegar ég ætlaði ekki að spila þar þá vissi ég að ég ætlaði að spila fyrir Stjörnuna. Ég fann bara í hjarta mínu að ég vildi bara koma heim og Stjarnan er það eina í boði hjá mér. Ég er mikil Stjörnukona og er alin upp hérna,“ sagði Gunnhildur Yrsa í viðtali við Val Pál Eiríksson í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hún segir að vinnuveitendur hennar hjá Orlando Pride hafi ekki verið yfir sig ánægðir að hún vildi segja upp samningnum. „Þau skildu þetta skref og af hverju ég vildi koma hingað. Þetta er ævintýrasaga að geta spilað aftur fyrir klúbbinn sem maður byrjaði með. Í Bandaríkjunum er það ekki í boði, það er enginn sem fer í akademíu og upp í meistaraflokk. Þau skildu þetta og ég get þakkað þeim fyrir það að þau voru ekki með nein leiðindi.“ Gunnhildur Yrsa er búin að vera atvinnumaður erlendis í tíu ár og segir að álagið í bandarísku deildinni sé mikið. „Það er mikið um ferðalög, maður er að fljúga í fimm tíma í útileiki, er á stanslausu ferðalagi og nær ekki endurheimt. Ég var bara orðin þreytt og svo þegar var frí þá var landsliðsverkefni í Evrópu þannig að þetta voru ansi mikil ferðalög. Líkaminn var farinn að segja mér aðeins að róa mig.“ Hún segir að þetta hafi hjálpað til við að taka ákvörðunina og einnig tækifærið til að gera meira en spila bara fótbolta. Hún segir spennandi hluti framundan hjá Stjörnunni sem leikur í undankeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili. „Það skemmir ekki fyrir, það er reyndar rétt hjá þér,“ sagði Gunnhildur Yrsa brosandi að lokum. Allt viðtalið við Gunnhildi Yrsu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan þar sem hún segist hlakka til að geta gert fleira en spila bara fótbolta.
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Fótbolti Fleiri fréttir Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Sjá meira