Seinni bylgjan hitar upp: Hann er jókerinn sem að Víkinga vantaði Sindri Sverrisson skrifar 26. nóvember 2021 12:01 Ásgeir Örn Hallgrímsson mætti í settið til Stefáns Árna Pálssonar og spáði í spilin fyrir 10. umferð. Skjáskot Stöð 2 Víkingur eða HK mun brátt geta státað sig af því að vera ekki lengur án stiga í Olís-deild karla í handbolta. Liðin mætast í sannkölluðum botnslag sem segja má að standi upp úr, eða kannski niður úr, í 10. umferð deildarinnar. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Stefán Árni Pálsson rýndu í komandi leiki í tíundu umferðinni sem hófst reyndar þegar Valur og Haukar gerðu 26-26 jafntefli í síðustu viku. Fjórir leikir eru á sunnudaginn en umferðinni lýkur á mánudagskvöld þegar Víkingur og HK, sem enn eru án stiga, mætast í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun Ásgeirs og Stefáns Árna má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan - Upphitun fyrir 10. umferð „Þetta verður hörkubarátta,“ sagði Ásgeir um botnslaginn. „Það er mikið undir því þarna eru langmestar líkurnar fyrir þessi lið á að ná í stig. Ef maður skoðar tölfræðiþættina þá er eins og að HK-ingar hafi aðeins yfirhöndina. Þeir eru að skora fleiri mörk og það er aðeins meiri hraði í þeirra leik. Heilt yfir eru þeir aðeins líklegri en Víkingarnir,“ sagði Ásgeir. Leikirnir í 10. umferð: Fimmtudagur 18. nóvember: Haukar - Valur 26-26 Sunnudagur 28. nóvember: 15.30 Grótta – ÍBV 17.00 Selfoss – KA 18.00 Stjarnan – Fram 19.30 Afturelding – FH Mánudagur 29. nóvember: 19.30 Víkingur – HK Tippar á að Víkingur vinni og að Hamza skori tíu Ásgeir var þó á því að Víkingar færu með sigur af hólmi og að þar myndi skyttan Hamza Kablouti, sem kom frá Aftureldingu, gera gæfumuninn: „Þetta er akkúrat leikmaðurinn sem Víkinga vantaði. Þá vantaði svona hálfgerðan „jóker“ sem kemur inn á í sóknina og léttir á öllum sóknarleiknum. Hann hatar ekki að skjóta og er fínn í því þannig lagað. Það hjálpar oft liðum í svona gæðaflokki. HK-ingar eru að þroskast með hverjum leik og verða hægt og hægt betri með hverjum leik sem þeir spila. Þeir voru óheppnir í þessum leik á móti Stjörnunni (sem endaði 23-25) og þetta var leikur fram á síðustu mínútu. Þeir halda áfram sínu konsepti, gera margt vel en gera svo líka einföld aulamistök sem verða þeim að falli,“ sagði Ásgeir. „Ég held að Víkingur vinni þetta og að Hamza skori tíu,“ svaraði hann svo þegar Stefán bað hann að spá fyrir um úrslit. Upphitun þeirra félaga fyrir botnslaginn sem og leikina fjóra á sunnudag má sjá hér að ofan. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á miðvikudaginn. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Fleiri fréttir Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi „Breytir eiginlega öllu fyrir mig“ Sjá meira
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Stefán Árni Pálsson rýndu í komandi leiki í tíundu umferðinni sem hófst reyndar þegar Valur og Haukar gerðu 26-26 jafntefli í síðustu viku. Fjórir leikir eru á sunnudaginn en umferðinni lýkur á mánudagskvöld þegar Víkingur og HK, sem enn eru án stiga, mætast í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun Ásgeirs og Stefáns Árna má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan - Upphitun fyrir 10. umferð „Þetta verður hörkubarátta,“ sagði Ásgeir um botnslaginn. „Það er mikið undir því þarna eru langmestar líkurnar fyrir þessi lið á að ná í stig. Ef maður skoðar tölfræðiþættina þá er eins og að HK-ingar hafi aðeins yfirhöndina. Þeir eru að skora fleiri mörk og það er aðeins meiri hraði í þeirra leik. Heilt yfir eru þeir aðeins líklegri en Víkingarnir,“ sagði Ásgeir. Leikirnir í 10. umferð: Fimmtudagur 18. nóvember: Haukar - Valur 26-26 Sunnudagur 28. nóvember: 15.30 Grótta – ÍBV 17.00 Selfoss – KA 18.00 Stjarnan – Fram 19.30 Afturelding – FH Mánudagur 29. nóvember: 19.30 Víkingur – HK Tippar á að Víkingur vinni og að Hamza skori tíu Ásgeir var þó á því að Víkingar færu með sigur af hólmi og að þar myndi skyttan Hamza Kablouti, sem kom frá Aftureldingu, gera gæfumuninn: „Þetta er akkúrat leikmaðurinn sem Víkinga vantaði. Þá vantaði svona hálfgerðan „jóker“ sem kemur inn á í sóknina og léttir á öllum sóknarleiknum. Hann hatar ekki að skjóta og er fínn í því þannig lagað. Það hjálpar oft liðum í svona gæðaflokki. HK-ingar eru að þroskast með hverjum leik og verða hægt og hægt betri með hverjum leik sem þeir spila. Þeir voru óheppnir í þessum leik á móti Stjörnunni (sem endaði 23-25) og þetta var leikur fram á síðustu mínútu. Þeir halda áfram sínu konsepti, gera margt vel en gera svo líka einföld aulamistök sem verða þeim að falli,“ sagði Ásgeir. „Ég held að Víkingur vinni þetta og að Hamza skori tíu,“ svaraði hann svo þegar Stefán bað hann að spá fyrir um úrslit. Upphitun þeirra félaga fyrir botnslaginn sem og leikina fjóra á sunnudag má sjá hér að ofan. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á miðvikudaginn. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Leikirnir í 10. umferð: Fimmtudagur 18. nóvember: Haukar - Valur 26-26 Sunnudagur 28. nóvember: 15.30 Grótta – ÍBV 17.00 Selfoss – KA 18.00 Stjarnan – Fram 19.30 Afturelding – FH Mánudagur 29. nóvember: 19.30 Víkingur – HK
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild karla Seinni bylgjan Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Fleiri fréttir Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi „Breytir eiginlega öllu fyrir mig“ Sjá meira