„Það yrði skelfilegt fyrir Val að missa hana út“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2023 10:31 Sara Sif Helgadóttir hefur verið að spila mjög vel í marki Valsliðsins að undanförnu. Vísir/Hulda Margrét Valskonur gætu verið að missa út sinn besta markvörð eftir að Sara Sif Helgadóttir meiddist í leik liðsins á móti Stjörnunni um helgina.
Seinni bylgjan sýndi atvikið og ræddi áhrifin sem þau gætu haft á framhaldið hjá Valsliðinu í baráttunni um titlana á þessu keppnistímabili. „Það var atvik í síðari hálfleik sem var vont að sjá,“ sagði Svava Kristín Gretarsdóttir, umsjónarkona Seinni bylgjunnar. Sara Sif Helgadóttir þurfti aðstoð við að yfirgefa völlinn og var sárþjáð.S2 Sport „Það virðist ekki mikið gerast þarna en hún liggur eftir og tekur um hnéð. Það fá allir svakalegt illt í hnéð þegar þeir sjá svona gerast því markvörðurinn er ekkert að fá neitt högg þarna,“ sagði Svava Kristín. „Ég er búinn að horfa á þetta nokkrum sinnum og ég skil þetta,“ sagði Einar Jónsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. „Það yrði skelfilegt fyrir Val að missa hana út,“ sagði Árni Stefán Guðjónsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar. „Ég talaði við hana í gærkvöldi og hún sagði að hún gæti gengið en að þetta væri mjög bólgið. það væri verið að bíða eftir niðurstöðu eftir að hún kæmist í myndatöku. Það hræðir mann svolítið þegar maður veit að leikmaður getur gengið en það er mikið bólgið. Það er krossbandalykt af þessu,“ sagði Svava. „Ég vona það besta því þetta yrði rosalegt,“ sagði Einar. „Það skiptir engu máli með breiddina fyrir utan því það er þetta sem skiptir máli,“ sagði Svava. „Ef þetta fer á versta veg þá væri það hræðilegt fyrir Valsliðið. Sara er búin að vera mjög góð undanfarin mánuð eða rúmlega það, virkilega góð. Hún er búin að vera að stíga upp eftir svolítið erfiða tíma,“ sagði Einar. „Hún var að koma upp á rétta tímapunktinum og hefði getað orðið winner fyrir Valsmenn eins og markmenn eru oft í þessum úrslitakeppnum. Ef þetta fer á versta veg og þá segi ég vara ef, ef, ef, þá er ég hræddum um að þetta sé orðið ansi erfitt fyrir Val að fara í úrslitaeinvígið á móti ÍBV,“ sagði Einar. „Við skulum ekki fara alveg þangað en það er nokkuð ljóst að hún er ekki að fara taka þátt í bikarkeppninni. Það er bara undanúrslitaleikur á miðvikudaginn á móti Haukum,“ sagði Svava. Það má horfa á alla umfjöllunina um meiðsli Söru hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Meiðslin hjá Söru Sif
Olís-deild kvenna Seinni bylgjan Valur Powerade-bikarinn Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM Sjá meira