Katarar létu njósna um forystumenn FIFA Kjartan Kjartansson skrifar 23. nóvember 2021 10:18 Mohamed bin Hamad Al-Thani, formaður umsóknarnefndar Katar (t.v.) og Sheikh Hamad bin Khalifa Al-Thani, emír Katars, (t.h.) með Jerome Valcke, þáverandi aðalritara FIFA þegar tilkynnt var að Katar fengið HM 2022 árið 2010. AP/Anja Neidringhaus Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar.
Katar hreppti óvænt hnossið þegar FIFA ákvað hver fengi að halda heimsmeistaramótið 2022 árið 2010. Ásakanir hafa lengi verið um að Katar og Rússland, sem fékk mótið 2018, hafi mútað forsvarsmönnum knattspyrnuhreyfingarinnar til þess að tryggja sér réttinn til að halda eitt stærsta íþróttamót í heimi. Nú segir AP-fréttastofan að Katarar hafi verið með Kevin Chalker, fyrrverandi útsendara bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), á launaskrá sinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um hvaða land yrði gestgjafinn árið 2022. Hann hafi njósnað um háttsetta embættismenn FIFA og hin löndin sem sóttust eftir að halda mótið. Eftir að Katar fékk mótið njósnaði hann um gagnrýnendur arabaríkisins í knattspyrnuheiminum. Reyndi að gabba menn með fegurðardís á Facebook Chalker reyndi meðal annars að narra þá sem hann vildi njósna um með fölskum Facebook-aðgangi sem átti að tilheyra aðlaðandi konu og lét útsendara sýna fylgjast með keppinautum dulbúnir sem blaðaljósmyndarar. Þá reyndi hann að komast eftir skrá yfir símtöl að minnsta kosti eins háttsetts embættismanns FIFA fyrir atkvæðagreiðsluna árið 2010. Katar reiðir sig á innflutt erlent vinnuafl til að reisa leikvanga og innviði fyrir heimsmeistaramótið. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt harðlega meðferð á verkamönnunum. Chalker er sagður hafa lofað Katörum að hjálpa þeim að „tryggja yfirráð“ þeirra yfir erlendu starfsmönnunum. Hvorki Chalker, FIFA né katarskir ráðamenn svöruðu spurningum AP málið. Í yfirlýsingu fullyrti Chalker að hvorki hann né fyrirtæki hans myndu nokkurn tíman stunda ólöglegt eftirlit með neinum. Bitlingar til FIFA-manna Katarar hafa lengi keypt sér greiða í knattspyrnuheiminum með gylliboðum og mútum. Karl-Heinz Rummenigge, fyrrverandi formaður Sambands evrópskra knattspyrnuliða, var á sínum tíma gagnrýninn á að Katar hefði fengið HM 2022. Hann þurfti síðar að greiða háa sekt eftir að hann greindi ekki frá tveimur dýrum Rolex-úrum sem hann hafði heim með sér til Þýskalands frá Katar árið 2013. Sonur belgísks embættismanns FIFA fékk vinnu í Katar skömmu eftir atkvæðagreiðsluna árið 2010 en siðanefnd FIFA komst að þeirri niðustöðu að atvinnutilboðið tengdist henni ekki. Jerome Valcke, aðalritari FIFA frá 2007 til 2015, er nú til rannsóknar hjá saksóknurum í Sviss vegna meintrar spillingar. Málið tengist lúxusvillu á ítölsku eyjunni Sardiníu í eigu Katara sem Valcke hafði afnot af.
Katar HM 2022 í Katar FIFA Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Erlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Fleiri fréttir Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Sjá meira