Heimavöllurinn stenst ekki kröfur

Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli. mbl.is/Árni Sæberg

Kópavogsvöllur stenst ekki þær kröfur sem Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, setur um lýsingu í sínum sjónvarpsútsendingum og mun því meistaraflokkur kvenna hjá Breiðabliki ekki geta spilað sína heimaleiki á heimavelli, en liðið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu á dögunum.

„Sjónvarpið gerir kröfur um 800 LUX,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks. Hann segir Breiðablik skoða nú hvað hægt sé að gera en á heildina litið sé félagið í erfiðri stöðu.

„Það er kannski hægt að eiga við núverandi möstur og gera eitthvað á vellinum til þess að ná þessu sem þarf að ná. Ef það gengur ekki þá er það bara Laugardalsvöllur,“ segir hann og bætir við að þó svo að gaman sé að spila á þjóðarleikvanginum þá séu ýmis vandamál sem fylgi.

Laugardalsvöllur sé ekki heimavöllur Breiðabliks og sé á grasi en ekki gervigrasi líkt og Kópavogsvöllur þar sem liðið æfir. Þar að auki sé óvíst hvort hægt verði að spila á Laugardalsvelli yfir veturinn þar sem hann er ekki upphitaður líkt og heimavöllurinn.

„Varðandi leikina sem verða í nóvember og desember vitum við ekkert hvernig tíðin verður og ekki víst að Laugardalsvöllur sé klár í það. Við erum bara ekki í góðri stöðu með þetta mál, það er bara þannig. Það hefði þurft að setja 800 LUX á hann á sínum tíma,“ segir Eysteinn. 

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert