Flagga í hálfa stöng við bandaríska sendiráðið Eiður Þór Árnason skrifar 23. febrúar 2021 16:29 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað öllum erlendum sendiráðum að flagga fánanum í hálfa stöng fram á föstudag. Bandaríska sendiráðið Bandaríska fánanum hefur verið flaggað í hálfa stöng við bandaríska sendiráðið hér á landi til að minnast þeirra 500 þúsund einstaklinga sem hafa látist í Bandaríkjunum vegna Covid-19.
Hvergi í heiminum eru fleiri skráð dauðsföll af völdum sjúkdómsins og ávarpaði Joe Biden Bandaríkjaforseti þjóð sína í gær í tilefni af þessum sorglega áfanga. Hefur faraldurinn þar með lagt fleiri Bandaríkjamenn að velli en báðar heimsstyrjaldirnar og Víetnamstríðið til samans. Vegna þessa fyrirskipaði Biden að bandaríski fáninn yrði hífður í hálfa stöng fram til sólseturs á föstudag við allar opinberar byggingar, þar með talið erlend sendiráð og herstöðvar. Rúmlega 28 milljónir manna hafa nú smitast af Covid-19 í Bandaríkjunum og er það sömuleiðis hærri tala en í nokkru öðru ríki. Biden bað fólk í gær um að nýta stundina til að minnast þeirra sem látist hafa í faraldrinum og var höfð mínútu þögn á lóðinni fyrir utan Hvíta húsið. Þá hvatti forsetinn landsmenn til að snúa bökum saman í baráttunni við veiruna. Birtu táknræna forsíðu Stórblaðið New York Times minntist áfangans á sunnudag með því að birta hálfa milljón svartra punkta á forsíðu sinni sem tákn fyrir hvern þann sem látið hefur lífið af völdum Covid-19 í landinu. Rétt um ár er síðan fyrsta andlátið var staðfest í Bandaríkjunum. Þann 24. maí í fyrra birti New York Times lista með nöfnum hluta þeirra Bandaríkjamanna sem höfðu týnt lífinu af völdum sjúkdómsins. Þótt þeim hafi farið fækkandi sem greinast með veiruna á degi hverjum í Bandaríkjunum og nú horfi á margan hátt til betri vegar með tilkomu bóluefna eru þó vaxandi áhyggjur uppi vegna nýrra afbrigða veirunnar. Our flag flies at half-staff to honor the more than 500,000 Americans lost to COVID-19. Proclamation by President Joe Biden: https://bitly.com/37DtYnhPosted by US Embassy Reykjavik Iceland on Tuesday, February 23, 2021
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Biden minntist þeirra sem hafa látist í faraldrinum Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi í tilefni af þeim sorglega áfanga að nú hafa 500 þúsund Bandaríkjamenn dáið af völdum Covid-19, fleiri en í nokkru öðru landi. 23. febrúar 2021 06:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira
Biden minntist þeirra sem hafa látist í faraldrinum Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi í tilefni af þeim sorglega áfanga að nú hafa 500 þúsund Bandaríkjamenn dáið af völdum Covid-19, fleiri en í nokkru öðru landi. 23. febrúar 2021 06:49