„Ég er ekki brjáluð út í Úrval Útsýn, ég er brjáluð út í Mannlíf,“ segir Berglind Ýr Baldvinsdóttir, Tenerife-fari, en Mannlíf birti í morgun frétt af óförum Berglindar varðandi skítugt hótelherbergi á Tenerife. Er Berglind í fyrsta lagi ósátt við að Mannlíf hafi tekið frásögn hennar og ljósmyndir úr lokuðum FB-hópi án leyfis og í öðru lagi að Mannlíf hafi sagt að hún væri brjáluð út úr Úrval Útsýn vegna málsins, sem hún segir vera alrangt.
Hvað sem því líður þá er því ekki að neita að hótelberbergið sem beið Berglindar var grútskítugt. Berglind lýsti aðkomunni svo í FB-hópnum:
„Við erum á Hotel Oro Negro og þetta er hótelherbergið sem við erum í, það er fullbókað svo ekki möguleiki að fá annað herbergi en þvílíkur viðbjóður, það er eins einhver hafi mjakað skít a gólfið, flísarnar á gólfinu eru brotnar og mygla i öllu. Ég mæli ekki með þessu og maðurinn er ekki góður.“
Hotel Oro Negro er þriggja stjörnu hótel.
Málið fór betur en á horfðist og var leyst fyrir milligöngu Úrvals Útsýnar og er nú búið að þrífa herbergið töluvert. Berglind ætlar ekki að láta þessa uppákomu spilla ferðinni og gefur hún Úrval Útsýn og fararstjóranum í ferðinni toppeinkunn fyrir viðbrögðin.
„Mér líður sko dásamlega á eyjunni enda komið hér áður,“ segir Berglind og hlær. Við óskum henni góðrar dvalar á Tenerife.