Ástkært lið Selfoss jarðað í Seinni bylgjunni: „Algjör hauskúpuleikur“ Sindri Sverrisson skrifar 24. janúar 2023 16:00 Selfyssingar skoruðu aðeins fjögur mörk í öllum fyrri hálfleiknum, en fengu 23 mörk á sig. Stöð 2 Sport „Ástkært handknattleikslið okkar, kvennalið Selfoss, var á laugardaginn jarðað í Set-höllinni. Viðstaddir upplifðu erfiðan dag. Aðstandendur senda innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Blóm og kransar hafa verið afþakkaðir.“ Svona hóf Svava Kristín Gretarsdóttir, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, umfjöllunina um leik Selfoss og ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta í þætti gærdagsins. Undir ómuðu Dánarfregnir og jarðarfarir og sérfræðingunum var nánast orða vant eftir að fyrri hálfleikur leiksins var rifjaður upp, en ÍBV vann hann 23-4. Lokatölur leiksins urðu svo 40-19, og varði Marta Wawrzynkowska 28 skot í marki Eyjakvenna. Svava velti upp þeirri spurningu hvað í ósköpunum hefði gengið á hjá leikmönnum Selfoss: „Við erum búin að tala þessa leikmenn svo upp. Við skiljum ekki af hverju þessi liðsframmistaða skilar sér ekki inni á vellinum,“ sagði Svava og Sigurlaug Rúnarsdóttir tók við boltanum: „Þetta er ágætlega mannað lið en það er því miður einhvern veginn ekkert að ganga upp. Það vantar betri strúktúr og þær þurfa basically að laga um það bil allt, eftir þennan leik. Þetta var erfitt.“ Klippa: Seinni bylgjan - Jarðarför á Selfossi Blásið út eftir leik eða endursýning daginn eftir? „Ég ætla rétt að vona að botninum sé náð eftir þetta,“ sagði Árni Stefán Guðjónsson og hélt áfram: „Þetta er algjör hauskúpuleikur sem þær lenda í; Marta í stuði í markinu og það gengur ekkert upp. Maður hefur haft tvenns konar þjálfara í gegnum tíðina. Önnur týpan hefði inni í klefa eftir leik blásið út og svo væri það bara búið, afgreitt og næsti leikur. Hin týpan hefði látið mann mæta klukkan 9:30 á sunnudagsmorgninum til að horfa á leikinn, frá upphafi til enda. Það er spurning hvaða leið verður farin en ég held að eina leiðin sé upp á við. Stundum þegar þú færð svona hauskúpuleik þá er það ömurlegt þegar á því stendur, en það léttir kannski ákveðnu fargi af manni.“ Sigurlaug sagði að búast mætti við því að nýliðar fái skell, þó að hún hafi ekki búist við svona slæmu tapi hjá Selfyssingum: „Ég held að þetta sé þekkt hjá nýliðum, að fá einn svona leik þar sem maður steinliggur. En ég bjóst við meira af Selfossliðinu. Mér finnst þær vel mannaðar. Þær byrjuðu tímabilið svolítið vel, á sigurleik, og svo tíndust hægt og rólega fleiri leikmenn inn. En þeim til varnar þá áttu þær ágætis sóknir í fyrri hálfleiknum en Marta var svolítið mikið fyrir þeim.“ Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Seinni bylgjan ÍBV UMF Selfoss Olís-deild kvenna Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira
Svona hóf Svava Kristín Gretarsdóttir, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, umfjöllunina um leik Selfoss og ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta í þætti gærdagsins. Undir ómuðu Dánarfregnir og jarðarfarir og sérfræðingunum var nánast orða vant eftir að fyrri hálfleikur leiksins var rifjaður upp, en ÍBV vann hann 23-4. Lokatölur leiksins urðu svo 40-19, og varði Marta Wawrzynkowska 28 skot í marki Eyjakvenna. Svava velti upp þeirri spurningu hvað í ósköpunum hefði gengið á hjá leikmönnum Selfoss: „Við erum búin að tala þessa leikmenn svo upp. Við skiljum ekki af hverju þessi liðsframmistaða skilar sér ekki inni á vellinum,“ sagði Svava og Sigurlaug Rúnarsdóttir tók við boltanum: „Þetta er ágætlega mannað lið en það er því miður einhvern veginn ekkert að ganga upp. Það vantar betri strúktúr og þær þurfa basically að laga um það bil allt, eftir þennan leik. Þetta var erfitt.“ Klippa: Seinni bylgjan - Jarðarför á Selfossi Blásið út eftir leik eða endursýning daginn eftir? „Ég ætla rétt að vona að botninum sé náð eftir þetta,“ sagði Árni Stefán Guðjónsson og hélt áfram: „Þetta er algjör hauskúpuleikur sem þær lenda í; Marta í stuði í markinu og það gengur ekkert upp. Maður hefur haft tvenns konar þjálfara í gegnum tíðina. Önnur týpan hefði inni í klefa eftir leik blásið út og svo væri það bara búið, afgreitt og næsti leikur. Hin týpan hefði látið mann mæta klukkan 9:30 á sunnudagsmorgninum til að horfa á leikinn, frá upphafi til enda. Það er spurning hvaða leið verður farin en ég held að eina leiðin sé upp á við. Stundum þegar þú færð svona hauskúpuleik þá er það ömurlegt þegar á því stendur, en það léttir kannski ákveðnu fargi af manni.“ Sigurlaug sagði að búast mætti við því að nýliðar fái skell, þó að hún hafi ekki búist við svona slæmu tapi hjá Selfyssingum: „Ég held að þetta sé þekkt hjá nýliðum, að fá einn svona leik þar sem maður steinliggur. En ég bjóst við meira af Selfossliðinu. Mér finnst þær vel mannaðar. Þær byrjuðu tímabilið svolítið vel, á sigurleik, og svo tíndust hægt og rólega fleiri leikmenn inn. En þeim til varnar þá áttu þær ágætis sóknir í fyrri hálfleiknum en Marta var svolítið mikið fyrir þeim.“ Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Seinni bylgjan ÍBV UMF Selfoss Olís-deild kvenna Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira