Samtök namibískra fjölmiðlamanna gagnrýna framferði Samherja

Ófrægingarherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja gegn Helga Seljan er harðlega gagnrýnd í yfirlýsingu NAMPU, fagfélags namibísks fjölmiðlafólks.

Helgi Seljan fréttamaður fær stuðning frá namibískum fjölmiðlamönnum, í yfirlýsingu samtaka þeirra í dag.
Helgi Seljan fréttamaður fær stuðning frá namibískum fjölmiðlamönnum, í yfirlýsingu samtaka þeirra í dag.
Auglýsing

Fag­fé­lag fjöl­miðla­fólks í Namibíu (NAMPU) lýsir yfir áhyggjum af þróun mála á Íslandi, í yfir­lýs­ingu sem félagið sendir frá sér í dag, á alþjóð­legum degi fjöl­miðla­frels­is.

Namibísku sam­tökin hvetja vinnu­veit­endur fjöl­miðla­fólks hér á landi, sem og yfir­völd sem hafa frelsi fjöl­miðla á sínu mál­efna­sviði, til þess að gera sitt ýtrasta til að tryggja að frétta­menn geti unnið að almanna­hags­munum með því að afhjúpa spill­ingu.

Í yfir­lýs­ing­unni er aðför sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Sam­herja að íslenskum frétta­mönn­um, sér­stak­lega Helga Selj­an, mót­mælt harð­lega. Einnig eru við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins við frétta­flutn­ingi, meðal ann­ars með mynd­böndum þar sem ráð­ist er að æru frétta­manna og beinni áreitni, for­dæmd.

„Fyr­ir­tæk­ið, þrátt fyrir að hafa rétt til þess að svara fyrir ásak­anir gegn því, ætti ekki að reyna að bæla opin­bera grann­skoðun á hlut­verki þess í Fis­hrot-skandaln­um,“ segir um Sam­herja í yfir­lýs­ingu NAMPU.

Sam­tökin segja einnig að blaða­menn eigi að hafa rétt til þess að verja sig gagn­vart árásum Sam­herja á sínum eigin sam­fé­lags­miðlar­ásum, en sem kunn­ugt er kærði Sam­herji 11 frétta- og dag­skrár­gerð­ar­menn á Rík­is­út­varp­inu til siða­nefndar fyrir ummæli um Sam­herja á sam­fé­lags­miðl­um.

Auglýsing

Helgi Seljan var einn tal­inn hafa brotið gegn siða­regl­unum með ummælum á sam­fé­lags­miðlum og þeirri nið­ur­stöðu verður ekki áfrýj­að. Stjórn­endur Rík­is­út­varps­ins hafa sagt að nið­ur­staðan komi ekki til með að hafa nein áhrif á störf Helga fyrir rík­is­fjöl­mið­il­inn og unnið er að því að end­ur­skoða siða­reglur RÚV.

Sam­herji hefur hins vegar kraf­ist þess að Helgi fjalli ekki frekar um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins og meðal ann­ars keypt aug­lýs­ingu í öðrum íslenskum fjöl­miðli, mbl.is, þar sem stjórn­endur rík­is­fjöl­mið­ils­ins eru sak­aðir um ábyrgð­ar­leysi.

Birt­ing þeirrar aug­lýs­ingar hefur verið gagn­rýnd af hálfu stjórnar Blaða­manna­fé­lags Íslands. „Á fjöl­miðlum eru skörp skil milli aug­lýs­inga­deilda og rit­stjórna en með þess­ari aug­lýs­ingu var stigið yfir þá línu því her­ferð Sam­herja er ekki aðeins her­ferð gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn heldur bein­ist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórn­um, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is,“ sagði í bréfi stjórnar félags­ins til fram­kvæmda­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra Árvak­urs, útgef­anda mbl.­is.

Í kjöl­farið hefur trún­að­ar­maður Blaða­manna­fé­lags­ins hjá Árvakri sagt sig frá því hlut­verki.

Namibísku sam­tökin hvetja fjöl­miðla­fólk um allan heim, sér­stak­lega í Evr­ópu, til þess að styðja íslenska kollega sína og for­dæma ógn­anir í þeirra garð af hálfu fyr­ir­tækja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent