Klopp: „Origi er goðsögn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. desember 2021 07:01 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, jós lofi yfir Divock Origi eftir sigur liðsins gegn Wolves í gær. James Gill - Danehouse/Getty Images Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var eðlilega í skýjunum eftir 1-0 sigur sinna manna gegn Wolves í gær þar sem Divock Origi skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Hann segist vona að leikmaðurinn finni þjálfara sem gefur honum fleiri mínútur í framtíðinni.
Origi kom inn á sem varamaður fyrir Jordan Henderson þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Á fjórðu mínútu uppbótartíma skoraði hann fyrsta og eina mark leiksins, og tryggði Liverpool þar með stigin þrjú, og toppsæti deildarinnar í nokkrar klukkustundir. „Hann er frábær leikmaður og geggjaður gæji,“ sagði Klopp í samtali við BBC eftir sigurinn. „Að koma inn á og leggja sitt af mörkum fyrir liðið eins og hann gerði í dag, að skora þetta mark - framúrskarandi. Ég er mjög, mjög glaður fyrir hans hönd.“ Origi er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Liverpool, en þetta var ekki í fyrsta skipti sem hann skorar mark undir lok leiks. Mark gærdagsins var hans tíunda eftir að hafa komið inn á sem varamaður, en enginn leikmaður hefur skorað meira fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Leikur gærkvöldsins markaði líka áhugaverð tímamót fyrir Origi, en þetta var í hundraðasta skipti sem hann kemur inn á sem varamaður fyrir Liverpool. „Divock Origi er goðsög. Fólk mun skrifa bækur um hann, vonandi. Ef ekki þá geri ég það,“ sagði Klopp léttur. „Hann er magnaður framherji. Af ýmsum ástæðum hefur hann ekki spilað mjög mikið, en ég vona að einn daginn finni hann þjálfara sem gefur honum fleiri mínútur en ég.“ „Hann er einn sá besti sem ég hef séð í að klára færi. Í þessu frábæra liði, með þessa sóknarlínu, spilar hann ekki mjög mikið. En hann er jákvæður strákur, elskar klúbbinn, vill leggja sitt af mörkum, og hann gerði það með stæl í kvöld.“
Enski boltinn Mest lesið „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Dagskráin í dag: Fótbolti, golf og margt fleira Sport Fleiri fréttir Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ B-deildarliðið hársbreidd frá því að fara alla leið Liverpool jafnar efsta sætið að stigum Sjá meira