Portúgalski sóknarmaðurinn Rafael Leao segist eiga Zlatan Ibrahimovic mikið að þakka fyrir árangurinn sem hann hefur náð með Milan.
Leao var besti maður ítölsku deildarinnar á síðasta ári er Milan vann titilinn.
Portúgalinn skoraði 11 mörk og lagði upp 10 í deildinni og er nú með eftirsóttustu leikmönnum Evrópuboltans.
Samherji hans, Zlatan Ibrahimovic, hefur oft verið gagnrýndur í fjölmiðlum fyrir viðhorf sitt í garð leikmanna, en Leao hefur aðra sögu að segja en margir aðrir.
„Þegar ég fór í gegnum ákveðin umskipti þá varð ég allt annar leikmaður. Fjölskyldan, þjálfarinn og Ibrahimovic voru gríðarlega mikilvæg á þessum kafla ferilsins. Zlatan er algjör fyrirmynd og kenndi mér virðið í því að spyrja spurninga og að vera alltaf einbeittur. Við tölum alltaf saman þegar við getum og ekki bara sem samherjar heldur einnig sem manneskjur," sagði Leao.
Athugasemdir