„Mjög gaman að hann hafi þessa skoðun á mér“ Sindri Sverrisson skrifar 2. júní 2023 14:00 Sveindís Jane Jónsdóttir í undanúrslitunum gegn Arsenal þar sem Wolfsburg hafði að lokum betur eftir mikla spennu. Þjálfari Arsenal hrósaði henni í vikunni. Getty Sveindís Jane Jónsdóttir leikur á morgun úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, með Wolfsburg gegn Barcelona. Þar gæti hún nýtt ógnarhraða sinn sem heillað hefur meðal annars þjálfara Arsenal.
Sveindís kom til Eindhoven í Hollandi í gær en þar fer úrslitaleikurinn fram á morgun klukkan 14, fyrir framan troðfullan leikvang á fjölmennasta leik í sögu knattspyrnu kvenna í Hollandi. Þeir 34.100 miðar sem voru í boði á leikinn eru löngu uppseldir. View this post on Instagram A post shared by VfL Wolfsburg Frauen (@vfl.wolfsburg.frauen) Miðað við frammistöðu Sveindísar að undanförnu, til að mynda gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og gegn Bayern München í undanúrslitum þýska bikarsins, má fastlega gera ráð fyrir því að hún verði í byrjunarliði Wolfsburg á morgun. Hún lagði upp eitt mark og skoraði annað gegn Arsenal, og hlaut hrós í grein sem Jonas Eidevall, þjálfari Arsenal, skrifaði í vikunni fyrir The Guardian. Þar sagði hann einna forvitnilegast að fylgjast með því í úrslitaleiknum hvernig Barcelona ætlaði að eiga við Sveindísi, sem væri einn besti skyndisóknarmaður heims. „Vonandi kemur það á móti Barcelona“ „Mér finnst bara mjög gaman að heyra það. Hann er frábær þjálfari og það er mjög gaman að hann hafi þessa skoðun á mér,“ segir Sveindís í viðtali við Vísi sem birtast mun í nokkrum hlutum í dag og á morgun. En verða skyndisóknirnar, með Sveindísi í broddi fylkingar, vopnið sem Wolfsburg notar til að vinna Barcelona? „Ég hef hraða og ég held að það sé mjög mikið að hjálpa í skyndisóknum. Ég bíð oftast frammi í varnarhornum, en ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég er léleg að verjast hornum eða af því að ég er góð í skyndisóknum,“ segir Sveindís hlæjandi. „En mér finnst geggjað að geta notað það sem ég hef að gefa liðinu, þó ég hafi ekki skorað mikið af mörkum sjálf úr skyndisóknum. Vonandi kemur það á móti Barcelona. Það er alla vega geggjað að heyra þetta hrós.“ Klippa: Sveindís um hrós þjálfara Arsenal Sveindís hefur eins og fyrr segir verið mjög áberandi í stórleikjum nú í vor, og hjálpað Wolfsburg að verða þýskur bikarmeistari og komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þó hefur hún ekki spilað eins mikið og hún vildi á allri leiktíðinni en eins og sjá má af þessari syrpu með mörkum Wolfsburg úr Meistaradeildinni þá hefur hún lagt sín lóð á vogarskálarnar. Spilar stóru leikina en vill spila meira „Mér finnst ég búin að vera að spila stóru leikina en samt er ég ekki búin að spila eins mikið og ég hefði viljað. Ég hef ekkert verið að byrja alla leiki en þó komið inn á í flestum. En núna undir lok tímabilsins hef ég verið að spila mikið meira en í byrjun, svo þetta er góður uppgangur. Mér finnst geggjað að fá þessi tækifæri, hef byrjað síðustu leiki og fæ þá vonandi starta úrslitaleikinn. Þá myndi ég segja að ég hafi klárað tímabilið mjög vel,“ segir Sveindís og bætir við: „Ég átti alla vega mjög góðan leik gegn Bayern í bikarnum [Innsk.: skoraði tvö mörk í 5-0 sigri] og eftir þann leik hef ég fengið að spila mikið meira. Það er bara geggjað. Í þessu liði sem ég er í þá þarftu að standa þig vel í leikjum til að fá mínúturnar. Það er ekkert gefið hérna. Við erum með ótrúlega góða sóknarmenn og það er eiginlega galið hvað við erum með mikið af geggjuðum leikmönnum í hópnum. Auðvitað vill maður spila allar mínútur en ég er mjög sátt með það sem ég hef sýnt í þeim leikjum sem ég hef spilað.“ Úrslitaleikur Wolfsburg og Barcelona hefst klukkan 14 á morgun að íslenskum tíma og hægt verður að horfa á beina útsendingu DAZN á Vísi.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Fleiri fréttir Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Sjá meira