Innlent

Segir sýknu­dóm von­brigði

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Sigurður segir margt í ferlinu hafa verið ámælisvert.
Sigurður segir margt í ferlinu hafa verið ámælisvert. Vísir/Arnar

Framkvæmdastjóri Frigusar segir dóm í máli gegn ríkinu og Lindarhvoli koma gríðarlega á óvart og vera vonbrigði. Íslenska ríkið og Lindarhvoll voru í dag sýknuð af kröfu félagsins vegna sölu á eignarhaldsfélaginu Klakka.

Salan fór fram árið 2016 en Lindarhvoll sá um sölu á eignum sem ríkið leysti til sín eftir hrun. Ein þessara sala var salan á eignarhaldsfélaginu Klakka sem áður hét Exista. Krafa Frigusar hljóðaði upp á rúmar 650 milljónir. 

Kvika banki fyrir hönd Frigusar setti fram tilboð upp á 501 milljón, BLM fjárfestingar buðu 505 milljónir og tilboð frá Ásaflöt ehf. hljóðaði upp á 502 milljónir. Tilboði BLM fjárfestinga var að lokum tekið.

Félagið Frigus kærði ríkið og Lindarhvol með það fyrir augum að fá greiddar bætur því ekki hafi verið rétt staðið að sölunni en Frigus er í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssona, eitt sinn kennda við Bakkavör og Sigurðar Valtýssonar sem einnig er framkvæmdastjóri félagsins.

Sigurður gagnrýnir söluferlið harðlega.

„Jafnræði bjóðenda var ekkert, gagnsæi var lítið og hlutlægni lítil. Það var ekkert farið eftir siðareglum félagsins um þessi mál. Það liggur fyrir að þeir sem buðu voru framkvæmdastjórar og fjármálastjórar klakka, þeir höfðu að sjálfsögðu betri upplýsingar en allir aðrir. Þeir höfðu sex mánaða uppgjör klakka, þeir höfðu sjö og átta mánaða uppgjör Lýsingar, sem var aðaleign félagsins.“

Það sé í skoðun hvort sýknudómnum verði áfrýjað.

„Við erum að fara yfir dóminn í rólegheitum en það eru miklar líkur á því. Niðurstaðan kom mér á óvart og töluverð vonbrigði að sjá hvernig er skautað framhjá miklum ágöllum í þessu ferli.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×