Íslandsbanki hagnaðist um 7,6 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt drögum að uppgjöri. Arðsemi eigin fjár nam 15,7%. Afkoman var „töluvert umfram fjárhagsleg markmið bankans og spár greiningaraðila,“ að því er kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér fyrir opnun Kauphallarinnar í morgun.  Íslandsbanki hefur hækkað um tæplega 3% í fyrstu viðskiptum dagsins.

Hagnaður bankans á þriðja fjórðungi meira en tvöfaldast frá sama tímabili á síðasta ári þegar bankinn hagnaðist um 3,4 milljarða og og arðsemi eiginfjár nam 7,4%.

Sjö greiningaraðilar höfðu spáð að Íslandsbanki myndi hagnast um 4,6 milljarða króna á fjórðungnum, ef miðað er við meðaltal svara. Greiningaraðilarnir gerðu ráð fyrir því að hagnaður bankans yrði á bilinu 2,9-6,2 milljarðar króna.

Rekstrartekjur Íslandsbanka jukust um 20,6% frá fyrra ári og námu 13,3 milljörðum króna á fjórðungnum. Hreinar vaxtatekjur voru 8,8 milljarðar, hreinar þóknanatekjur 3,4 milljarðar og hreinar fjármunatekjur 0,9 milljarðar. Fram kemur að hreinar fjármunatekjur hafi aukist aðallega vegna jákvæðrar virðisbreytingar á fjárfestingu í óskráðum hlutdeildarfélögum. Þá nam rekstrarkostnaður 5,7 milljörðum á tímabilinu samanborið við 5,6 milljörðum fyrir ári.

„Frávikin milli ára og frá markmiðum bankans skýrast að stærstum hluta af því að virðisrýrnun er jákvæð og er um 1,8 milljarðar króna færður til tekna vegna þess í fjórðungnum að mestu leyti vegna bjartari horfa í ferðaþjónustu og vegna minni óvissu í mati á vanefndarlíkum einstaklinga í kjölfar uppfærðs áhættumatslíkans,“ segir í tilkynningunni.

Til samanburðar færði bankinn um 1,1 milljarð til gjalda í virðisrýrnun á þriðja ársfjórðungi 2020 sem tengdist að mestu leyti þeirri óvissu sem uppi var vegna kórónuveirufaraldursins á þeim tíma.

Íslandsbanki áréttar að uppgjörið og kynningarefni fyrir þriðja ársfjórðung 2021 er enn í vinnslu og því geta áðurnefndar tölur tekið breytingum fram að birtingardegi þann 28. október næstkomandi.