Ferðamaður lést við Hengifoss

Ljósmynd/mbl.is

Erlendur ferðamaður lést við Hengifoss í dag. Þetta staðfestir lögreglan á Austurlandi við mbl.is.

Lögregla og sjúkraflutningalið voru kölluð á vettvang skömmu eftir hádegi í dag en þeim hafði borist tilkynning um veikan mann við Hengifoss. Að sögn lögreglunnar var maðurinn ekki einn á ferð.

Maðurinn reyndist látinn þegar lögregla kom á vettvang og endurlífgunartilraunir viðbragðsaðila báru ekki árangur.

Dánarorsök liggur ekki enn fyrir en að sögn lögreglunnar var um veikindi að ræða, líklega hjartaáfall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert