Námskeiðið hafi einkennst af samhengislausu tali Bjarki Sigurðsson skrifar 16. mars 2023 20:57 Konan vildi fá endurgreitt frá fyrirtækinu. Getty Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur að kona sem keypti námskeið fyrir sig og fjölskyldu sína ætti ekki að fá endurgreitt þrátt fyrir að hafa verið afar ósátt við inntak þess. Að mati konunnar einkenndust fyrirlestrarnir sem hún borgaði fyrir af samhengislausu tali sem tengdust inntaki námskeiðsins ekki.
Í fyrrasumar keypti konan aðgang að dagsnámskeiði hjá ónefndu fyrirtæki fyrir sig og fjölskyldu sína. Greiddi hún fyrir það 240 dollara, tæplega 34 þúsund krónur, og fékk einnig kennslubók. Vill hún meina að fyrirtækið sem hún keypti námskeiðið af hafi ekki veitt þá þjónustu sem hún taldi sig vera að kaupa. Krafðist hún fullrar endurgreiðslu þar sem fyrirkomulag og inntak námskeiðsins hafi verið með öllu óásættanlegt í engu samræmi við þær upplýsingar sem komi fram á heimasíðu fyrirtækisins. Samhengislausir fyrirlestrar Meðal þess sem hún kvartaði undan í kæru sinni til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa var að námskeiðið hafi ekki farið fram í kennslustofu eins og áætlað var heldur heima hjá starfsmanninum sem hélt fyrirlestra námskeiðsins. Þá hafi fyrirlestrarnir sjálfir einkennst af fjögurra klukkustunda samhengislausu tali um eitthvað sem er strikað úr dómnum og önnur málefni. Hafi fyrirlesarinn ítrekað farið út fyrir efnið og á einum tímapunkti boðið dóttur konunnar að sitja í fangi sér þar sem hún hafi verið við það að sofna undir fyrirlestrinum. Konan kveðst hafa verið í töluverðu áfalli eftir námskeiðið þar sem það hafi ekki verið í samræmi við væntingar sínar. Hún hafði kynnt sér upplýsingar námskeiðsins og umsagnir viðskiptavina á heimasíðu fyrirtækisins en þær voru allar afar jákvæðar. Sagan var þó allt önnur ef skoðaðar voru ferðasíður á borð við TripAdvisor þar sem er að finna fjölda umsagna frá einstaklingum sem hafi fengið slæma reynslu af námskeiðinu. Engin andsvör bárust Nefndinni bárust engar umsagnir eða andsvör um kæruna frá fyrirtækinu eftir að hafa óskað eftir þeim. Að mati nefndarinnar hefði konan átt að reyna að leysa málið beint með gagnaðila, sem hún hafði ekki gert. Hún hafði ekki verið í neinum samskiptum við fyrirtækið og einungis óskað eftir því að fá endurgreiðslu hins greidda gjalds við kortafyrirtæki sitt en sú greiðsla barst henni nýlega. Þar sem hún hafði ekki reynt að hafa samband fyrst við seljanda og greint honum frá kvörtun sinni var kærunni því vísað frá nefndinni. Þá var einnig litið til þess að konan hafði þegar fengið endurgreitt frá kortafyrirtæki sínu. Úrskurð nefndarinnar má lesa í heild sinni hér.
Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Farsímatekjur undir væntingum Viðskipti innlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Hvað er opið um páskana? Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði leiki nú lausum hala Fólk sæki bætur sjálft til að sleppa við „blóðuga“ þóknun Gapandi yfir gjörbreyttu frumvarpi og varar við því Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Dældu skemmdri díselolíu á bíla sína Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Landsbankinn lækkar vexti Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Gerði ekki gott mót og dæmdur til að veita afslátt Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Sjá meira