Kári lagði Persónuvernd Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 16. mars 2023 17:11 Kári Stefánsson er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19.
Forsaga málsins er sú að í nóvember 2021 komst Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að vinnsla persónuupplýsinga Landspítala og Íslenskrar erfðagreiningar í aðdraganda viðbótar við rannsóknina Faraldsfræði SARS-CoV-2-veirunnar og áhrif erfða og undirliggjandi sjúkdóma á COVID-19-sjúkdóminn sem hún veldur, samrýmdist ekki lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Taldi ákvörðun tekna á röngum grundvelli Í nóvember árið 2021 stefndi Íslensk erfðagreining Persónuvernd og Landspítalanum, og krafðist málskostnaðar. Landspítalinn gerði ekki kröfur í málinu. Íslensk erfðagreining taldi að ákvörðun Persónuverndar væri tekin á röngum grundvelli og haldin margvíslegum og alvarlegum annmörkum. Þá taldi Íslensk erfðagreining að litið hefði verið fram hjá því við ákvörðunina að fyrirtækið hefði verið að vinna í þágu og að beiðni heilbrigðis-og sóttvarnayfirvalda, í því skyni að veita þeim einstaklingum sem lágu á spítala vegna COVID-19 læknismeðferð. Í niðurstöðu héraðsdóms segir meðal annars að við meðferð Persónuverndar, á frumkvæðisrannsókn sinni í málinu hafi stofnunin leitað ítrekað eftir svörum frá Landspítala vegna blóðsýnatökunnar á Landspítala, og freistað þess að fá upplýsingar um hvort sýnatakan hefði verið gerð í meðferðartilgangi. Svör forstjóra Landspítala voru hins vegar óljós: Persónuvernd borið að rannsaka nánar „Dómurinn telur að í ljósi þess hversu viðurhlutamikinn stefndi, Persónuvernd, mat þann óskýrleika og það misræmi sem stofnunin taldi fram komið í svörum stefnanda annars vegar og stefnda, Landspítala, hins vegar, hefði stefnda, Persónuvernd, borið að rannsaka þetta atriði nánar. Þá hefði stefnda, Persónuvernd, verið rétt að veita stefnanda andmælarétt áður en stofnunin tók hina umþrættu ákvörðun sína 23. nóvember 2021. Þetta á sérstaklega við þar sem með hliðsjón af því sem að framan er rakið virðast verulegar líkur á að niðurstaða stofnunarinnar hefði orðið önnur ef stefnandi hefði notið andmælaréttar,“segir í dómnum. Þá kemur fram að í þessu sambandi verði einnig að horfa til þess að ákvörðun Persónuvernda er tekin á grundvelli frumkvæðisrannsóknar sem augljóst sé að stofnunin var í engu tímahraki að ljúka.
Dómsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Íslensk erfðagreining Heilbrigðismál Landspítalinn Persónuvernd Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Fleiri fréttir Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Sjá meira