Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Árni Sæberg skrifar 20. mars 2023 20:44 Starfsmenn á vegum lögreglunnar í New York borg reistu varnargirðingar við dómshúsið í borginni í morgun. Seth Wenig/Ap Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla.
Donald Trump sagði á laugardag að hann verði handtekinn á morgun. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Í svokölluðum „sannleik“ sem hann birti á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, sagði Trump að „ólöglegur leki“ bendi til þess að hann verði handtekinn á morgun, þriðjudag, og kallaði eftir því að stuðningsmenn hans mótmæli víðs vegar um Bandaríkin. Lögregluyfirvöld í New York ríki, þar sem mál Trumps eru til rannsóknar, eru á tánum vegna hugsanlegrar yfirvofandi ákvörðunar kviðdóms í ríkinu um að Trump verði ákærður. Búist var við því að kviðdómurinn kæmist að niðurstöðu seint í dag eða á miðvikudag. Kviðdómurinn var þó enn að störfum við að afla sönnunargagna í dag, að því er segir í frétt Reuters um málið. Hluti af undirbúningi lögreglunnar var að reisa girðingar utan um og við dómshúsið á Manhattan. Mótmælahvatning hefur hlotið dræmar undirtektir Þrátt fyrir að óttast sé að skilaboð Trumps til stuðningsmanna sinna valdi því að þeir bregðist ókvæða við, líkt og þeir gerðu þann 2. janúar árið 2021 þegar þeir réðust inn í þinghúsið í Washington, virðast undirtektir vera dræmar. Eric Adams, borgarstjóri New York borgar, segir til að mynda að lögreglan þar í borg hafi fylgst vel með samfélagsmiðlum síðustu daga í leit að „óviðeigandi aðgerðum“, en að engar trúverðugar ógnir hafi fundist. Í frétt AP um málið segir að jafnvel sumir af hörðustu stuðningsmönnum forsetans fyrrverandi hafi sagt hvatningu til mótmæla tímasóun eða jafnvel bragð af hálfu lögregluyfirvalda. Þeirra á meðal er Ali Alexander, einn skipuleggjenda „Stop the steal“, hreyfingar sem hélt því ranglega fram að sigri í forsetakosningunum árið 2020 hefði verið „stolið“ af Trump. Hann varaði stuðningsmenn Trumps við því að mótmæla í New York, enda gætu þeir lent í því að vera handteknir eða þaðan af verra, gerðu þeir það. „Þið njótið hvorki frelsis né réttinda þar,“ sagði hann á samfélagsmiðlinum Twitter.
Bandaríkin Donald Trump Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Fleiri fréttir Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Sjá meira