Stórfellt höfrungadráp í Færeyjum vekur reiði Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2021 11:04 Úr Skálafirði á sunnudaginn. AP/Sea Shepherd Dýraverndunarsinnar beina nú spjótum sínum að Færeyingum sem veiddu hundruð höfrunga um helgina. Rúmlega fjórtán hundruð höfrungum var smalað með bátum upp í fjörur Skálafjarðar á sunnudag þar sem heimamenn slátruðu þeim og skáru.
Fjölmargir fjölmiðlar um allan heim hafa fjallað um veiðina og reiði dýraverndunarsinna. Þar á meðal eru BBC, Guardian og Washington Post. Færeyingar veiða fjölmarga höfrunga og smáhveli á ári hverju en að þessu sinni er talið að met hafi verið sett í fjölda veiddra dýra. Hingað til hafi metið verið um tólf hundruð dýr í einni veiði og var það sett árið 1940, samkvæmt sérfræðingi sem BBC ræddi við. Færeyingar segja veiðar smáhvela vera sjálfbærar og hluta af menningu þeirra. Að mestu eru veiddir grindhvalir en höfrungarnir sem veiddir voru á sunnudaginn eru af tegundinni leiftur. Ráðamenn í Færeyjum segja að ekki hafi staðið til að veiða svo marga höfrunga. Mistök hafi hins vegar verið gerð, samkvæmt Kringvarpinu og þau hafi ekki orðið ljós fyrr en höfrungarnir voru komnir í strand. Þrátt fyrir það voru engin lög brotin og veiðin var samþykkt af yfirvöldum. Dýraverndunarsamtökin Sea Sheperd hafa dreift myndefni af veiðunum á sunnudaginn á netinu, eins og samtökin hafa ítrekað gert á undanförnum árum. Klippa: Höfrungadráp í Færeyjum Sjá einnig: Sea Shepherd birtir blóðugt myndband af grindadrápi Færeyinga Sea Shepherd-samtökin, sem Paul Watson stofnaði, eru þekktust hér á landi fyrir að sökkva tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 og fyrir skemmdarverk á hvalstöðinni í Hvalfirði. Færeyingar eru meðvitaðir um reiðina. Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra, og Sjúrður Skaale, þingmaður jafnaðarmanna, ræddu málið í KFV í gærkvöldi. Sjúrður sagði veiðarnar koma niður á Færeyjum og orðspori Færeyinga en Jacob sagði mikilvægt að Færeyingar standi vörð um rétt sinn til veiðanna. BBC ræddi við blaðamann KFV sem segir Færeyinga hafa brugðist reiða við fréttum af veiðinni í Skálafirði. Fólki þyki allt of mörg dýr hafa verið drepin. Þá gerði miðillinn könnun þar sem rúmlegur helmingur svarenda sagðist andvígur veiðum sem þessum. Tæpur þriðjungur sagðist hlynntur þeim. Þá sýndi önnur könnun að mikill meirihluti Færeyinga vill halda grindhvalaveiðum áfram.
Færeyjar Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Sjá meira