Rússar íhuga að loka öllu í viku vegna Covid-bylgju Þorgils Jónsson skrifar 20. október 2021 13:19 Grafalvarlegt ástand er í Covid-málum í Rússlandi þessa dagana. Á myndinni sjást heilbrigðisstarfsmenn á sjúkrahúsi í Moskvu sinna sjúklingi. Aldrei hafa fleiri Rússar látist af völdum Covid-19 á einum degi heldur en í gær, en samkvæmt opinberum tölum létust 1.028 manns. Alls hafa 226.353 látist af völdum Covid-19 í Rússlandi frá upphafi faraldursins, sem er það langmesta meðal Evrópuríkja og í fimmta sæti á heimsvísu, á eftir Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Mexíkó.
Rúmar átta milljónir Rússa hafa smitast af Covid-19. Tatyana Golikova aðstoðarforsætisráðherra viðraði í dag þá hugmynd að bregðast við þessari skæðu bylgju með því að lýsa því yfir að fólk haldi sig heima í eina viku frá og með 30. október næstkomandi, en þegar eru fjórir opinberir frídagar í þeirri viku. Tillagan hefur þó ekki verið samþykkt af Vladimir Putin forseta. Samkvæmt frétt AP hefur smitum fjölgað verulega síðustu vikur og er nú í áður óþekktum hæðum. Þar er talið ríkja almennt sinnuleysi gagnvart einstaklingsbundnum sóttvörnum og stjórnvöld hafa heykst á að herða sóttvarnarreglur. Þá vekur athygli hversu dræm þátttaka hefur verið í bólusetningum í Rússlandi. Þar er einungis tæpur þriðjungur landsmanna, um 45 milljónir af 146 milljónum, er fullbólusettur, þrátt fyrir að Rússland hafi verið fyrsta ríkið í heiminum til að samþykkja notkun bóluefnis, og enginn hörgull er á framboði á bóluefni. Bólusetningahik almennings er að hluta til rakið til óljósra skilaboða frá stjórnvöldum, sem hafa, á vettvangi ríkisfjölmiðla, lofsamað hið rússneska Sputnik V en grafið undan öðrum bóluefnum. Staðan í mörgum héruðum Rússlands er háalvarleg, og sumsstaðar hefur almenn heilbrigðisþjónusta jafnvel verið aflögð um stundarsakir til að geta sinnt Covid-sjúklingum. Dmitry Peskov, talsmaður ríkisstjórnarinnar, játar í viðtali við fjölmiðla að ástandið sé afar dapurt og að bólusetningahlutfall í þessum erfiðustu héruðum sé afar lágt.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Rússland Tengdar fréttir Metfjöldi smitaðra og látinna í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi greindu í morgun frá því að metfjöldi manna hefði bæði smitast af Covid-19 og dáið vegna sjúkdómsins sem kórónuveiran veldur. Faraldurinn hefur náð nýjum hæðum í Rússlandi og er að reynast heilbrigðisstarfsmönnum erfiður. 14. október 2021 09:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Metfjöldi smitaðra og látinna í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi greindu í morgun frá því að metfjöldi manna hefði bæði smitast af Covid-19 og dáið vegna sjúkdómsins sem kórónuveiran veldur. Faraldurinn hefur náð nýjum hæðum í Rússlandi og er að reynast heilbrigðisstarfsmönnum erfiður. 14. október 2021 09:50