Fimm stórir skjálftar á 25 mínútum við Fagradalsfjall Kolbeinn Tumi Daðason og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 26. febrúar 2021 12:08 Það hefur rignt á suðvesturhorninu það sem af er degi. Upptök skjálftans upp úr hádegi í dag voru um 1,8 kílómetra norðaustan af Fagradalsfjalli. Vísir/Vilhelm Enn nötrar jörðin á suðvesturhorninu þar sem stórir skjálftar finnast. Stór skjálfti að stærð 4,4 reið yfir upp úr klukkan tólf og virðist ekkert lát á skjálftavirkninni sem verið hefur á svæðinu undanfarna tvo sólarhringa. Veðurstofa Íslands tók saman fimm stærstu skjálftana þegar þeir höfðu verið yfirfarnir klukkan 12:40. Þeir riðu yfir á 25 mínútna kafla frá 11:59 til 12:24. Sá fyrsti var 3,4 að stærð, sá stærsti 4,4 að stærð klukkan 12:06 og svo annar 3,6 að stærð klukkan 12:10. Við bættist einn 3,4 að stærð klukkan 12:14 og annar 4,0 að stærð 12:24. Allir skjálftarnir eru staðsettir um tvo kílómetra norður af Fagradalsfjalli. Íbúar austur á Hellu og Hvolsvelli segjast hafa fundið fyrir skjálftanum. Sömuleiðis íbúar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Fylgst er með gangi mála jafnóðum í vaktinni neðst í fréttinni. Upptök skjálftanna voru nærri Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Stærsti skjálftinn á miðvikudaginn var 5,7 að stærð og annar 5,0. Þá voru þónokkrir skjálftar yfir fjórir að stærð. Hreyfingar á mörgum sprungum Gervitunglamyndir sýna að hreyfingar hafa orðið á mörgum sprungum á Reykjanesinu í skjálftahrinunni undanfarna tvo sólarhringa. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, sagði við fréttastofu rétt fyrir hádegi að innistæða væri fyrir skjálfta á milli Kleifarvatns og Bláfjalla sem gæti orðið allt að 6,5 að stærð. Frá því skjálftahrinan hófst hafa mælst um fimm þúsund skjálftar á svæðinu en um eitt þúsund þeirra hafa mælst síðastliðinn sólarhring. Kristín Jónsdóttir er náttúruvársérfæðingur á Veðurstofu Íslands.Vísir/Baldur Hrafnkell „Við höfum í rauninni bara verið að fylgjast með því hvernig dregur smátt og smátt úr þessari virkni. Það má segja að þetta sé hefðbundin eftirskjálftavirkni sem við erum að sjá núna. Það eru auðvitað nokkrir skjálftar sem að nálgast þrjá og einn sem var yfir þrjá núna klukkan hálf níu ímorgun en það er alveg eðlilegt að mælum slíkra skjálfta bara í kjölfar svona öflugrar hrinu. Þessi hrinuvirkni er bara á svipuðum slóðum eins og virknin var fyrir tveimur dögum,“ segir Kristín. Kristín segir að nú séu komnar myndir úr gervitungli sem gefi gleggri mynd af skjáltahrinunni. Fylgjast áfram með virkninni „Sem sýnir greinilegar færslur í tengslum við alla þessa skjálfta og í rauninni og bara staðfestir það að þarna urðu hreyfingar á mörgum norður suður sprungum á belti sem liggur milli Kleifarvatns og Grindavíkur. Börn í Grindavík að leik á miðvikudaginn. Þau fundu eflaust mörg hver fyrir skjálftanum í dag.Vísir/Vilhelm „Á þessum myndum einmitt eru engin skýr merki um hérna neina þenslu og engin grunnkviku innskot sem við sjáum eða merki um neitt kvikuinnstreymi.“ Ef hins vegar innstreymið væri lítið er huganlegt að það sé falið. Kristín segir innistæðu fyrir skjálfta upp á allt að 6,5 nálægt Bláfjöllum. „Við erum bara auðvitað að fylgjast áfram með þessari virkni og það vonandi bara dregur úr þessu og það gerist ekki neitt meira en við verðum auðvitað að vera vakandi fyrir þessu svæði milli Kleifarvatns og Bláfjalla að þar er hugsanlega innistæða fyrir stærri skjálfta.“ Fréttin var síðast uppfærð klukkan 12:50.
Jarðhræringar á Reykjanesi Eldgos og jarðhræringar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira