Segir lífskjörin ekki verða tekin að láni Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 7. júní 2021 20:37 Guðlaugur Þór Þórðarson lagði áherslu á verðmætasköpun í ræðu sinni. vísir/vilhelm Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra segir skuldsetningu ríkissjóðs ekki vera réttu leiðina til þess að viðhalda þeim lífskjörum sem Íslendingar hafa vanist. Hann telur verðmætasköpun og sókn á erlendum mörkuðum mikilvæga í þessu samhengi. „
Nú er mikilvægara en nokkru sinni að efla verðmætasköpun í landinu, að ná kröftugri viðspyrnu eftir hinn óhjákvæmilega samdrátt sem faraldurinn hafði í för með sér.“ Þá segir Guðlaugur að við munum ekki skattleggja okkur út úr þrengingunum og að lífskjörin verði ekki tekin að láni. Það þurfi að veita fólki og fyrirtækjum svigrúm til að skapa verðmæti. „Við þurfum því að létta byrðum, einkum af smærri fyrirtækjum, í stað þess að auka þær.“ Hann bendir jafnframt á mikilvægi þess að auka sókn okkar á erlendum mörkuðum og að lífskjör okkar standi og falli með því hvernig sú sókn takist til. Hann segir einnig mikilvægt að okkar markaðir standi öðrum opnir. Sem utanríkisráðherra hafi hann lagt áherslu á að tryggja íslenskum fyrirtækjum samkeppnisstöðu á við keppinauta þeirra í öðrum löndum. Nýjasta dæmi um það sé fríverslunarsamningur við Bretland sem gerður var í samfloti við Noreg og Liechtenstein. Ef unga fólkið leitar annað, er illa fyrir okkur komið „Við viljum að unga fólkið sjái Ísland áfram sem land tækifæranna. Ef unga fólkið okkar leitar annað, ef það telur hag sínum betur borgið annars staðar, þá er illa fyrir okkur komið.“ Guðlaugur segir jafnframt að við þurfum að búa okkur undir það að eftir skamman tíma verði fimmti hver Íslendingur á lífeyrisaldri. Hann leggur til að litið sé til Norðurlandanna í þeim efnum. Frelsi og ábyrgð tvær hliðar á sama peningi Hann segir heimsfaraldurinn ekki vera búinn fyrr en hann hættir að vera ógn við heilsu samfélagsins og innviði heilbrigðiskerfisins. „Þá setjum við óttann í aftursætið og látum vonina, bjartsýnina og framkvæmdagleðina taka við stýrinu á ný.“ Hann ítrekar í þessu samhengi að frelsi og ábyrgð séu ekki andstæður, heldur tvær hliðar á sama peningi. Þá lauk hann máli sínu með því að minna á þá bjartsýni og þrautseigju sem einkennir íslensku þjóðina. „Við þurfum að hafa fyrir hlutunum - En það er bjart fram undan ef rétt er á málum haldið.“
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara í það minnsta fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira