Brenna inni með bunka af málum Snorri Másson skrifar 9. júní 2021 14:31 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Vísir/Vilhelm Á lokametrum kjörtímabilsins er ljóst að mörg af stóru málum ríkisstjórnarinnar munu ekki hljóta afgreiðslu í bili, þrátt fyrir að hafa sum verið í undirbúningi um langa hríð.
Gera má ráð fyrir að á þriðja tug mála fari í gegn það sem eftir lifir þings af um 50 stjórnarfrumvörpum sem eru enn inni í nefndum. Þingflokksformenn funduðu í hádeginu um hvaða málum skyldi hleypt í gegn á þinginu. Stjórnarflokkarnir kynntu hvaða mál þeir stefna að því að klára og hvaða mál ekki en enn eru viðræðurnar ekki komnar svo langt að stjórnarandstaðan sé farin að setja sínar óskir fram. Samkvæmt heimildum Vísis verður niðurstaðan með eftirfarandi hætti og endurspeglar hún vilja stjórnarinnar. Frumvarp um miðhálendisþjóðgarð verður sent aftur til ráðherra og er þar með úr leik á þessu þingi. Með þessu er brotið gegn stjórnarsáttmálanum, en málið er á vegum Vinstri grænna. Önnur meiri háttar mál VG mæta afgangi. Afglæpavæðing fíkniefna verður að öllum líkindum ekki samþykkt á þinginu og ekki heldur stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Rammaáætlun verður þá ekki afgreidd á þessu þingi. Mannanöfn og brugghús út Sjálfstæðismenn þurfa einnig að leyfa nokkrum málum að sitja á hakanum. Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á mannanafnalögum í mikla frjálsræðisátt verður ólíklega afgreitt á þessu þingi. Það sama gildir um frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur um að heimila smásölu á áfengi á framleiðslustað hjá smærri brugghúsum. Annað sem Áslaug Arna nær að líkindum ekki að leiða til lykta eru tillögur hennar til breytinga á útlendingalögum. Þær breytingar áttu að fela í sér að færri fengju efnismeðferð sinna mála hjá Útlendingastofnun og fleiri yrðu sendir aftur til fyrsta viðkomulands á flótta. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins virðist í fljótu bragði ekki hafa þurft að horfa á eftir mörgum málum á vegum flokksins, eins og VG og Sjálfstæðisflokkur hafa þurft að gera.Vísir/Vilhelm Ólíklegt er að frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar um breytingar á loftferðalögum nái fram að ganga, sem átti að færa samgönguráðherranum aukið skipulagsvald yfir Reykjavík. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kom fjölmiðlafrumvarpi sínu í gegnum þingið, en það var í töluvert annarri mynd en hún hafði lagt upp með. Styrkurinn til fjölmiðla er tímabundinn til fáeinna ára. Hefð er fyrir því að stjórnarandstöðuflokkum sé veitt svigrúm til að leggja fram sín mál á lokadögum þingsins. Píratar eru þar líklegir til að óska eftir því að þeirra útgáfa af afglæpavæðingarfrumvarpinu verði lögð fram aftur, eins og kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Ekki hefur komið fram hvað aðrir stjórnarandstöðuflokkar fara fram á.
Alþingiskosningar 2021 Stjórnarskrá Hálendisþjóðgarður Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Lagt til að vísa hálendisþjóðgarði aftur til ríkisstjórnar Áform um stofnun miðhálendisþjóðgarðs á kjörtímabilinu virðast endanlega fallin niður þar sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur lagt til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Rammaáætlun mun líklega einnig daga uppi í nefnd að sögn þingflokksformanns Viðreisnar. 9. júní 2021 12:10 Ólíklegt að það verði af afglæpavæðingu neysluskammta Ólíklegt er að frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta nái í gegnum þingið á lokadögum þess að mati Birgis Ármanssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Píratar hyggjast þá leggja fram eigið frumvarp í staðinn. 9. júní 2021 10:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Sjá meira
Lagt til að vísa hálendisþjóðgarði aftur til ríkisstjórnar Áform um stofnun miðhálendisþjóðgarðs á kjörtímabilinu virðast endanlega fallin niður þar sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur lagt til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Rammaáætlun mun líklega einnig daga uppi í nefnd að sögn þingflokksformanns Viðreisnar. 9. júní 2021 12:10
Ólíklegt að það verði af afglæpavæðingu neysluskammta Ólíklegt er að frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta nái í gegnum þingið á lokadögum þess að mati Birgis Ármanssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Píratar hyggjast þá leggja fram eigið frumvarp í staðinn. 9. júní 2021 10:10