Evra efast um covid, segir það pólítískt og að Bill Gates eigi þátt í faraldrinum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. janúar 2022 15:23 Patrice Evra hefur skrítnar skoðanir á kórónuveirufaraldrinum. getty/Matthew Lewis Patrice Evra, fyrrverandi leikmaður Manchester United, Juventus og fleiri liða, fór mikinn í viðtali í frönskum sjónvarpsþætti þar sem hann opinberaði sig sem efasemdarmann um kórónuveirufaraldurinn.
Evra varði meðal annars rétt fólks til að hafna bólusetningu, sagði að faraldurinn væri pólítískur, óttinn réði og gaf í skyn að einn ríkasti maður heims hafi átt þátt í að hrinda faraldrinum af stað. „Í augnablikinu finnst mér við tala of mikið um þetta covid. Við verðum að vera heiðarleg. Fólk hefur dáið vegna covid en ég fæ það á tilfinninguna að jafnvel ef þú lendir í bílslysi segjum við að það hafi verið út af covid,“ sagði Evra við BFM TV. „Mér finnst þetta vera pólítískt og ef alltaf sagt að þegar þú vilt stjórn fólki gerirðu það með óttanum. Við verðum að vera á varðbergi.“ Evra sagði að óbólusettir ættu ekki að fá aðra meðferð en aðrir. „Þetta verður að hætta núna, að bólusett fólk sé álitið gott en óbólusett vont. Nei, öllum er frjálst að gera og trúa því sem þeir vilja. Fólk verður að hafa rétt til að gera það sem það vill. Því enginn veit í raun hvað þetta er, þetta covid. Fyrir mér er þetta tilviljun. Við ljúgum ekki að hvort öðru. Þetta covid er fyrir tilviljun.“ Evra blandaði svo bandaríska milljarðamæringnum Bill Gates í málið og ýjaði að því að hann hefði vitað af veirunni fyrir löngu. „Bill Gates hafði þegar talað um þetta á ráðstefnu 2013. Ég segi ekki að þetta hafi verið skipulagt en ég myndi vilja að fólk talaði einhvern tímann um þetta, því ég tala alltaf hreint út. En covid hræðir mig ekki,“ sagði Evra í skringilegri ræðu. Vorið 2020, í fyrstu bylgju faraldursins, bað Evra fólk að halda sig heima og hvatti þá sem áttu í vandræðum vegna veirunnar til dáða. Tæpum tveimur árum seinna er komið aðeins annað hljóð í strokkinn hjá Frakkanum.
Fótbolti Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Fleiri fréttir Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Sjá meira