Hefðu ekki átt að setja upp tjald þar sem ný sprunga myndaðist Eiður Þór Árnason skrifar 9. apríl 2021 12:54 Magnús Tumi Guðmundsson áfellist engan fyrir að hafa ekki íhugað staðsetningu tjaldsins betur. Samsett Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að eftir á að hyggja hafi ekki verið gott að staðsetja björgunarsveitartjald þar sem líkur voru á að ný sprunga ætti eftir að myndast.
Greint hefur verið frá því að Björgunarsveitin Þorbjörn hafi á mánudag fært tjald sem komið hafi verið upp á svæðinu eftir að fyrsta nýja sprungan myndaðist í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn. Nýja sprungan kallaði ekki ótvírætt á þá aðgerð þar sem hún var um 200 metra frá tjaldinu en björgunarsveitin ákvað að færa tjaldið í varúðarskyni. Það var eins gott þar sem á miðnætti sama dag myndaðist enn önnur sprunga öllum að óvörum, sem lenti beint undir fyrri staðsetningu tjaldsins. Tjaldið var yfir kvikuganginum en vísindamenn höfðu sagt frá upphafi gossins að nýjar sprungur gætu myndast í sama kvikugangi í línu við upphaflega gosið. Hefur atvikið vakið upp spurningar um hvort ógætilega hafi verið farið þegar tjaldið var fyrst sett upp. Pældi ekki mikið í þessu Aðspurður um þetta á upplýsingafundi um eldgosið sagði Magnús Tumi að enginn hafi gert athugasemdir við staðsetninguna á sínum tíma. „Ég þekki það ekki vel en ég sá þetta þarna og það er bara þannig að það er auðvelt að vera vitur eftir á. Eftir á að hyggja var þetta ekki besti staðurinn en það gerði enginn athugasemdir við þetta vegna þess að fólk var kannski svolítið upptekinn af öðru.“ Hann sagði það fremur óalgengt að gos þróist með þessum hætti og algengara sé að gos séu öflugust í upphafi áður en svo dragi úr virkninni og það einangri sig. „Nú erum við að horfa á aðeins öðruvísi ferli. Það segir okkur að náttúran er að koma okkur á óvart. Eftir á að hyggja er ég alveg sammála því að þetta hefði ekki átt að vera svona en ég gerði ekki athugasemd við þetta fyrir fram og pældi ekki mikið í þessu þannig að mér dettur ekki í hug að gagnrýna aðra fyrir að hafa gert þetta,“ bætti Magnús Tumi við. Ólíklegt að gasmengun nái hættulegum styrk í byggð en ekki útilokað Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu Veðurstofu Íslands, sagði að lítil hætta sé á því að gasmengun fari langt yfir hættumörk í byggð líkt og gerðist í Holuhraunsgosinu þegar íbúar á Höfn í Hornafirði voru beðnir um að halda sig innandyra. Magnús Tumi benti jafnframt á að gosið í Fagradalsfjalli væri einungis um tvö til fimm prósent af stærð Holuhraunsgossins og gasframleiðsla því hlutfallslega minni. Elín sagði að í Holuhraunsgosinu hafi gas safnast upp nálægt stöðvunum og ferðast langa leið í eins konar poka þangað til hann fór yfir byggð. Litlar líkur séu á því að svo gerist núna. „Slíkar aðstæður gætu mögulega komið upp í Geldingadölum og þarna á svæðinu en það þyrfti að safnast upp talsvert gas og það þyrfti svo að fá að ferðast í rólegheitum að einhverjum nálægum bæjum. Auðvitað er munurinn hér að gosið er miklu minna en þar sem bæirnir eru miklu nær þá er alls ekki útilokað að þetta gerist.“ Meiri hreyfing á loftinu þegar hlýnar „Líkurnar á því eru litlar bæði vegna þess að þegar vindur nær sér á strik þá er hann mjög duglegur við að dreifa svona mengunarhólfum. Geldingadalir og þetta svæði er mjög lítið svo þessi poki sem myndi myndast væri aldrei það stór að hvöss vindátt myndi ekki tæta hann í sundur.“ Þar að auki hjálpi til að meiri hreyfing og blöndun sé á andrúmsloftinu á þessum árstíma og framundan sé tímabil þar sem búast megi við aukinni dreifingu á gosefnum sem þynnist í leiðinni út.
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Björgunarsveitir Grindavík Tengdar fréttir Möguleiki á að sprunga opnist á gönguleiðinni Möguleiki er á því að nýjar sprungur opnist vegna eldgossins í Fagradalsfjalli og gætu nýjar sprungur opnast bæði suður- og norður af þeim sprungum sem þegar hafa opnast. Eldfjallafræðingur segir fólk þurfa að vara sig við gosstöðvarnar en þar sé nú aukin hætta á gasmengun. 8. apríl 2021 21:03 Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20 „Það er þessi lína sem liggur til norðausturs sem er hættuleg“ Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir nýjan kafla að hefjast í eldgosinu í Geldingadölum, nú þegar nýjar sprungur hafa opnast. Hún telur ekki ólíklegt að sprunga opnist áfram í norðaustur og nær Keili. Fólk eigi ekki að vera á ferli á tiltekinni „línu“ til norðausturs sem kvikugangurinn teiknar upp. 7. apríl 2021 11:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Fleiri fréttir Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Sjá meira
Möguleiki á að sprunga opnist á gönguleiðinni Möguleiki er á því að nýjar sprungur opnist vegna eldgossins í Fagradalsfjalli og gætu nýjar sprungur opnast bæði suður- og norður af þeim sprungum sem þegar hafa opnast. Eldfjallafræðingur segir fólk þurfa að vara sig við gosstöðvarnar en þar sé nú aukin hætta á gasmengun. 8. apríl 2021 21:03
Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20
„Það er þessi lína sem liggur til norðausturs sem er hættuleg“ Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir nýjan kafla að hefjast í eldgosinu í Geldingadölum, nú þegar nýjar sprungur hafa opnast. Hún telur ekki ólíklegt að sprunga opnist áfram í norðaustur og nær Keili. Fólk eigi ekki að vera á ferli á tiltekinni „línu“ til norðausturs sem kvikugangurinn teiknar upp. 7. apríl 2021 11:19
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent