Pólitískur rétttrúnaður og aðför að málfrelsinu mjög hættuleg þróun Snorri Másson skrifar 2. febrúar 2023 08:55 Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður hóf störf á Morgunblaðinu í dag og lýsir því þar með sé hún komin heim. Það er, eftir um átta ára ferðalag á önnur mið; hún starfaði á Fréttablaðinu 2014-2022. Nú stendur til að taka þátt í umræðunni og halda borgaralegum gildum á lofti. „
Ég hef verið í fjölmiðlum í 25-30 ár og ég hef alltaf sagt við fólk, að þetta er hringekja. Ég hef verið á mörgum stöðum og alltaf þekkir maður einhvern. Hér kom ég um daginn til að ræða við Davíð og Harald [tvo ritstjóra blaðsins] og ég þekkti svo að segja alla starfsmennina. Þá er það bara eins og þú sért að koma heim,“ segir Kolbrún um ljúfar viðtökur á sínum gamla og nú aftur nýja vinnustað. Rætt er við Kolbrúnu og tekið hús á Morgunblaðinu í Íslandi í dag sem sjá má hér að ofan. Þar er farið um víðan völl - viðtalið hefst á þriðju mínútu. Kolbrún Bergþórsdóttir er einn reynslumesti starfandi blaðamaður landsins. Hún er nú komin aftur á Morgunblaðið eftir átta ára viðdvöl á öðrum vettvangi.Vísir/Einar „Ég er borgaraleg“ Kolbrún verður mest í menningu og í skrifum fyrir sunnudagsútgáfu blaðsins, en henni skilst einnig að hún fái tækifæri til að skrifa áfram skoðanagreinar, eins og hún gerði í Fréttablaðið þar til fyrir skemmstu. „Það er svo margt sem hægt er að skoða og gagnrýna,“ segir Kolbrún, sem hefur almennt verið talin í íhaldssamari kantinum í blaðamannastétt. „Ég er borgaraleg. Ég til dæmis styð þjóðkirkjuna. Ég er trúuð, sem kemur mörgum á óvart. Og svo er ég óskaplegur andstæðingur pólitísks rétttrúnaðar, sem mér finnst vera stórhættulegur.“ Ýmsa aðra þróun segir Kolbrún einnig varhugaverða, til dæmis sé sótt að málfrelsinu og einnig séu blikur á lofti í málefnum réttarfarsins. „Ég er mjög hugsi yfir þeirri þróun að ásökun jafngildi sekt. Að það sé hægt að ásaka fólk um eitthvað og það missi vinnuna. Þá þýðir voða lítið fyrir viðkomandi að segja: ‘Heyrðu, atburðarásin var ekki svona.’ eða að segja: ‘Þetta er ekki rétt, ég er saklaus.’ — Það er hlegið. Það er sagt: ‘Sko, burt með þig. Þú skalt ekki láta sjá þig.’ Þetta er mjög hættuleg þróun. Við höldum nefnilega að við séum svo ósköp umbyrðarlynd og víðsýn. En við erum grimmlynd og refsiglöð,“ segir Kolbrún. Hvað bókmenntagagnrýni snertir fullyrðir Kolbrún að stjörnugjöf í bókmenntadómum sé í hæstu hæðum; að þar sé verðbólgan mikil. Hún heitir því að gefa eina eða tvær stjörnur þegar það á við, rétt eins og fjórar eða fimm þegar það á við. Annað sem rætt er við Kolbrúnu er afstaðan til Evrópusambandsins, sem hún segir hafa breyst eilítið á allra síðustu árum.
Fjölmiðlar Menning Bókmenntir Ísland í dag Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Fleiri fréttir „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Sjá meira