Rafíþróttir

Tilþrifin: Allee tók út þrjá og Þór jafnaði toppliðin

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Allee** sýndi frábær tilþrif í liði Þórs.
Allee** sýndi frábær tilþrif í liði Þórs.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það allee** í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Heil umferð fór fram í gær þegar seinni Ofurlaugardagur tímabilsins var spilaður. Af nægu er að taka þegar kemur að tilþrifum, en það eru tilþrif allee** sem standa upp úr.

Þórsarar mættu Ten5ion í mikilvægum leik þar sem Þór gat stokkið upp að hlið toppliðanna tveggja, Dusty og Atlantic Esports, eftir að Dusty hafði betur í toppslagnum fyrr um daginn.

Þrátt fyrir að lið Ten5ion sé í botnbaráttu í Ljósleiðaradeildinni gáfu liðin áhorfendum hörkuspennandi viðureign sem endaði með því að allee** fór langleiðina með að tryggja Þórsurum sigurinn þegar hann tók út þrjá andstæðinga undir lok leiks.

Klippa: Elko tilþrifin: Allee tók út þrjá og Þór jafnaði toppliðin



Fleiri fréttir

Sjá meira


×