Ólíklegt að hætta stafi af gasmengun ef til goss kæmi Eiður Þór Árnason skrifar 3. mars 2021 17:10 Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfæðingur á Veðurstofu Íslands Vísir/Baldur Hrafnkell Litlar líkur eru á því íbúum muni stafa hætta af gasmengun ef til goss kæmi. Gert er ráð fyrir því að gasmengun geti lagt yfir höfuðborgarsvæðið en Veðurstofan mun birta spá um gasmengun samfara veðurfréttum ef af gosi verður.
Þetta kom fram í máli Kristínar Jónsdóttur, hópstjóra vöktunar og náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, á upplýsingafundi sem efnt var til í dag þegar bera fór á óróapúlsi suður af Keili á Reykjanesi. Óróapúls, sem er samfelld hrina smærri skjálfta, hefur gjarnan mælst í aðdraganda eldgosa en ekkert bendir þó til þess að gos sé hafið. „Miðað við þessi líkön sem við höfum verið að keyra, og þá erum að taka með hvernig vindar hafa blásið á þessu svæði síðustu tíu ár, miða við bestu þekkingu um eldgos sem verða á þessu svæði og hversu mikil gasmengun kemur upp, þá eru ekki miklar líkur á að þetta verði neitt hættulegt. Þetta verður kannski óþægilegt einhverja daga en við sjáum miðað við það sem við höfum verið að skoða að okkar reikningar benda ekki til þess að við þurfum að hafa miklar áhyggjur af þessu,“ sagði Kristín. Einnig kom fram í máli Kristínar að erfitt væri að segja til um hversu lengi eldgos gæti staðið yfir en ein til tvær vikur væri þó líklegur tími. Þá sé möguleiki á því að fleiri goshrinur komi í kjölfar þeirrar fyrstu. Horfa má á upplýsingafundinn í heild sinni hér fyrir neðan. Auknar líkur á stórum skjálftum Kristín sagði að almennt þegar eldgos hefjist verði oft jarðskjálftar þegar kvikan er að brjóta sér leið til yfirborðs. Auknar líkur séu því á stærri jarðskjálftum á Reykjanesskaga á meðan umbrotin eru í gangi og möguleiki á því að skjálftar þar nái allt að 6 að stærð og allt að 6,5 austar hjá Bláfjöllum. Útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands sýna að líklegast sé að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili renni til suðurs. Áður hefur komið fram að ein möguleg sviðsmynd geri ráð fyrir litlu til meðalstóru flæðigosi á þessu svæði sem muni ekki ógna byggð.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Heilbrigðismál Tengdar fréttir Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. 3. mars 2021 15:58 Bein útsending: Kristján Már flýgur yfir Reykjanesið í þyrlu Arnar Halldórsson kvikmyndatökumaður og Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, eru nú í þyrlu Helicopter.is á sveimi yfir Reykjanesinu þar sem óróapúls hófst um klukkan 14:20 í dag. 3. mars 2021 16:31 Lögregla vaktar veginn við Keili Lögregla stendur nú vaktina á Reykjanesbrautinni við afleggjarann að fjallinu Keili. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði á upplýsingafundinum í dag að vísindafólk og almannavarnir þyrftu vinnufrið á svæðinu. Ekkert væri að sjá í augnablikinu, gos væri ekki hafið. 3. mars 2021 16:18 Sterk vísbending um að eldgos sé að hefjast á Reykjanesi Óróapúls, sem Veðurstofan kallar litla vaxandi skjálfta með stuttu millibili, hófst klukkan 14:20 suður af Keili við Litla-Hrút og mælist á flestum jarðskjálftamælum. Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3. mars 2021 14:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Erlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Helga Þórisdóttir og Eiríkur Ingi Jóhannsson mæta í Pallborðið Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Sjá meira
Líklegast að hraun renni til suðurs Líklegast er að hraun frá eldgosi sem er mögulega að hefjast sunnan af Keili á Reykjanesi renni til suðurs. Þetta sýna útreikningar eldfjalla- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. 3. mars 2021 15:58
Bein útsending: Kristján Már flýgur yfir Reykjanesið í þyrlu Arnar Halldórsson kvikmyndatökumaður og Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, eru nú í þyrlu Helicopter.is á sveimi yfir Reykjanesinu þar sem óróapúls hófst um klukkan 14:20 í dag. 3. mars 2021 16:31
Lögregla vaktar veginn við Keili Lögregla stendur nú vaktina á Reykjanesbrautinni við afleggjarann að fjallinu Keili. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði á upplýsingafundinum í dag að vísindafólk og almannavarnir þyrftu vinnufrið á svæðinu. Ekkert væri að sjá í augnablikinu, gos væri ekki hafið. 3. mars 2021 16:18
Sterk vísbending um að eldgos sé að hefjast á Reykjanesi Óróapúls, sem Veðurstofan kallar litla vaxandi skjálfta með stuttu millibili, hófst klukkan 14:20 suður af Keili við Litla-Hrút og mælist á flestum jarðskjálftamælum. Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3. mars 2021 14:52