Bóluefnin eru kröftug og því eðlilegt að margir finni fyrir aukaverkunum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 11. maí 2021 13:05 vísir/vilhelm Níundi einstaklingurinn greindist smitaður af kórónuveirunni í Skagafirði í gær. Sóttvarnalæknir segir hópsýkinguna þar dreifðari en menn hafi í fyrstu talið. Hann segir að þó margir kvarti yfir aukaverkunum vegna bólusetninga sé það eðlilegt, bóluefnin séu mjög kröftug.
Níu hafa nú greinst smitaðir af kórónuveirunni í Skagafirði en nánast allt samfélagið þar er í sóttkví. „Þetta teygir sig aðeins víðar en menn héldu en það var tekið mikið af sýnum þar í gær. Langflest voru neikvæð þannig að vonandi verður þetta ekki meira en það gæti alveg orðið því meðgöngutími veirunnar er það langur,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Þrír eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af tveir í gjörgæslu. Þórólfur segir fólkið með breska afbrigði veirunnar. Hann segir að um fjögur prósent þeirra sem hafa veikst af breska afbrigðinu hafi þurft að leggjast inn á spítala en búist var að allt að 10% gætu þurft að leggjast inn þegar afbrigðið barst til landsins. „Það er heldur lægra hlutfall en við bjuggumst við en við höfum ekki verið að greina það marga að það sé marktækt. Þetta gæti átt eftir að breytast í einu vettvangi. Þó hefur Covid-göngudeildin mikil áhrif þ.e. það er gripið strax inn í ef fólk byrjar að fá mikil einkenni,“ segir Þórólfur. Indverska afbrigði kórónuveirunnar er nú komið á gátlista Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. „Það eru fréttir af því að það afbrigði sé meira smitandi en við eigum eftir að fá staðfestingu á því hvort það hegðar sér eitthvað öðruvísi,“ segir hann. Þórólfur segist hafa heyrt af mörgum sem kvarti yfir aukaverkunum eftir að hafa fengið bóluefni gegn Covid -19. Þá hefur Lyfjastofnun borist tæplega þúsund tilkynningar um aukaverkanir. Öll þessi bóluefni eru kröftug og valda kröftugu ónæmisviðbragði. Það var vitað fyrirfram að gætu orðið töluverð einkenni eftir bólusetningu með hita slappleika og beinverki. Það kemur að sjálfu sér ekki á óvart að svo margir kvarti yfir aukaverkunum,“ segir Þórólfur að lokum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Bólusetningar Tengdar fréttir Þrír greindust innanlands og tveir utan sóttkvíar Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir af þeim greindust voru utan sóttkvíar, en einn var í sóttkví. 11. maí 2021 10:44 Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. 7. maí 2021 11:23 Sextán andlát og 55 alvarleg atvik tilkynnt í kjölfar bólusetninga Sextán tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetninga hafa borist Lyfjastofnun það sem af er ári. Í heildina hafa borist 55 tilkynningar um alvarleg atvik í kjölfar bólusetningar með bóluefnum frá Pfizer, Moderna og AstraZeneca. 6. maí 2021 06:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Erlent Grunaðir um rán í miðbænum Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Innlent Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Sjá meira
Þrír greindust innanlands og tveir utan sóttkvíar Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir af þeim greindust voru utan sóttkvíar, en einn var í sóttkví. 11. maí 2021 10:44
Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. 7. maí 2021 11:23
Sextán andlát og 55 alvarleg atvik tilkynnt í kjölfar bólusetninga Sextán tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetninga hafa borist Lyfjastofnun það sem af er ári. Í heildina hafa borist 55 tilkynningar um alvarleg atvik í kjölfar bólusetningar með bóluefnum frá Pfizer, Moderna og AstraZeneca. 6. maí 2021 06:47