Allt stopp vegna óhapps á Reykjanesbraut

Röð bíla náði frá álverinu í Straumsvík og heillangt inn …
Röð bíla náði frá álverinu í Straumsvík og heillangt inn í Hafnarfjörð. Ljósmynd/Eva Björk

Óhapp varð á Reykjanesbrautinni nærri álverinu í Straumsvík nú á sjöunda tímanum. Kerra losnaði aftan úr bíl og þurfti að tína rusl og drasl sem fór á veginn, að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. 

Töluvert löng röð myndaðist á veginum í vesturátt, allt frá álverinu og að Lækjargötu og nánast niður að Kaplakrika, að því er heimildarmenn mbl.is á staðnum segja. 

Varðstjóri slökkviliðs segir að engin slys hafi orðið á fólki og einungis hafi þurft að gera veginn ökufæran að nýju. 

Frá Reykjanesbraut.
Frá Reykjanesbraut. Ljósmynd/Eva Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert