Hársbreidd frá fimmta sigrinum í röð

Elvar Már Friðriksson átti enn og aftur góðan leik.
Elvar Már Friðriksson átti enn og aftur góðan leik. Ljósmynd/FIBA

Siauliai var hársbreidd frá því að vinna fimmta sigurinn í röð í litháísku A-deildinni í körfubolta er liðið heimsótti Prienai í dag. Að lokum vann Prienai eins stigs sigur, 90:89.

Eins og oft áður var Elvar Már Friðriksson sterkur hjá Siauliai en hann skoraði 15 stig, gaf sex stoðsendingar og tók þrjú fráköst á rétt tæplega hálftíma.

Liðið var stóran hluta tímabilsins í neðsta sæti en er nú í sjöunda sæti með tíu sigra og nítján töp í 29 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert