Innlent

Vísa til trúnaðar í tengslum við á­bendingu um meint brot

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska landliðsins, sagðist í lok september ekki hafa fengið þau skilaboð að ofan um að hann mætti ekki velja ákveðna leikmenn. 
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska landliðsins, sagðist í lok september ekki hafa fengið þau skilaboð að ofan um að hann mætti ekki velja ákveðna leikmenn.  Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Aðgerðarhópurinn Öfgar hefur upplýsingar um meint ofbeldis- og kynferðisbrot sex leikmanna sem hafa verið fastamenn í íslenska landsliðinu undanfarinn áratug samkvæmt tölvupósti sem sendur var á stjórn Knattspyrnusambands Íslands í síðasta mánuði. KSÍ hefur ekki viljað tjá sig um málið.

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að hópurinn hafi sent umræddan póst á stjórn KSÍ í lok september síðastliðnum þar sem fram komu nöfn sex leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og upplýsingar um meint ofbeldis- og kynferðisbrot þeirra. 

Varð pósturinn til þess að Arnar Þór Viðarsson, þjálfari landsliðsins, gat ekki valið þá leikmenn fyrir leik landsliðsins í október fyrir undankeppni HM. Sjálfur sagði Arnar þann 30. september síðastliðinn að hann hafi sjálfur tekið ákvörðunina um að velja ekki umrædda leikmenn. 

Meðal þeirra sem nefndir voru í póstinum voru Aron Einar Gunnarsson, Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson, en mál þeirra hafa verið til umfjöllunar undanfarið í fjölmiðlum. 

Þrír leikmenn til viðbótar sem nefndir voru í pósti Öfga hafa ekki enn verið nafngreindir opinberlega. Meðlimir Öfga segja í samtali við fréttastofu að hópurinn muni ekki koma til með að tjá sig um málið.

Mál leikmannanna er nú sagt vera komið á borð Sigurbjargar Sigurpálsdóttur, samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, en hún vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu.

„Lögum samkvæmt þá ber samskiptaráðgjafa að gæta trúnaðar í sínum störfum og því get ég ekki staðfest neinar einstakar fréttir,“ segir Sigurbjörg í samtali við fréttastofu um málið en hún segir gott að fólk sé að nýta sér úrræðið. 

Ekki hafa fengist svör frá KSÍ vegna málsins.


Tengdar fréttir

„Vorum ekki að hugsa um Kolbein“

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari í fótbolta segir það hafa verið krefjandi áskorun að þurfa að bregðast við brotthvarfi Kolbeins Sigþórssonar úr síðasta landsliðshópi. Hann hafi hins vegar ekki komið til greina núna vegna meiðsla.

Arnar valdi Aron ekki vegna „utan­að­komandi“ á­stæðna

Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson segir að stjórn KSÍ hafi ekki sett sér neinar skorður varðandi valið á landsliðshópnum sem hann tilkynnti í dag, fyrir leikina við Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×