Matur

Chili Con Carne er hinn fullkomni haustréttur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Chili Con Carne að hætti Evu Laufeyjar.
Chili Con Carne að hætti Evu Laufeyjar. Eva Laufey

„Chili Con Carne er einn af þessum réttum sem er fullkominn á haustin, vinnuframlagið er nánast ekki neitt en útkoman dásamleg,“ segir Eva Laufey Kjaran um þessa uppskrift.  

„Ég er búin að liggja yfir uppskriftum að Chili Con Carne og loksins prófaði ég þennan fræga rétt og ég er mjög hrifin, uppskrift sem ég mun gera aftur og aftur. Það er hægt að bera réttinn fram með hrísgrjónum, í tortillavefjum, með brauði eða sem mexíkósk skál og það smellpassar nú á sjálfan Taco Tuesday. Ég mæli með að þið prófið og ég vona að þið njótið vel.“

Chili Con Carne uppskrift

Fyrir fjóra 

  • 2 msk ólífuolía + smjörklípa
  • 1 laukur, smátt saxaður 
  • 4 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 paprika, smátt skorin 
  • 1 dós nýrnabaunir, vel skolaðar 
  • 600 g nautahakk 
  • 800 g hakkaðir tómatar í dós
  • 2 msk tómatpúrra 
  • 400 ml nautasoð (vatn+teningur)
  • 2 tsk salt 
  • 2 tsk pipar
  • 2 tsk paprika 
  • 2 tsk cumin
  • 2 tsk oreganó 
  • 2 tsk laukduft
  • Chiliflögur, magn eftir smekk

*Það er líka í fína lagi að kaupa poka af mexíkóskri kryddblöndu og nota ef þið eigið ekki til öll þessi krydd og um að gera að prófa sig áfram með kryddin, mjög mikilvægt að smakka sig til og finna út hversu bragðmikill rétturinn á að vera.

Tillögur að meðlæti:

  • Nachos flögur 
  • Lárpera
  • Sýrður rjómi 
  • Cheddar ostur
  • Steinselja eða kóríander

Aðferðina má sjá hér í Instastory Evu Laufeyjar


Tengdar fréttir

Ómótstæðileg Snickers hrákaka

Helgaruppskriftin að þessu sinni er ómótstæðileg Snickers hrákaka frá matgæðingnum okkar Evu Laufey Kjaran. Þessa er frábært að eiga í kælinum og hún passar einstaklega vel með góðum kaffibolla.

Ostakaka með kanileplum, kökumulningi og karamellu

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir setti saman þessa dásamlegu uppskrift. Flestir á höfuðborgarsvæðinu taka því rólega þessa helgi að fyrirmælum þríeykisins. Við mælum með því að þeir sem ætla að baka um helgina, skoði uppskriftirnar okkar hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×