Málstofur Þjóðarspegilsins aðgengilegar öllum heima í stofu Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 29. október 2020 15:57 Vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu verður félagsvísindaráðstefnan Þjóðarspegilinn nú í fyrsta skipti á rafrænu formi. Mynd - Kristinn Ingvarsson „
Það má líta á kosti þess að hafa þurft að fara í þær breytingar að hafa ráðstefnuna rafræna því jafnvel munum við ná betur til fólks með þessum hætti,“ segir Stefán Hrafn Jónsson forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands í samtali við Vísi. Hin árlega ráðstefna Háskóla Íslands, Þjóðarspegillinn, hefst á morgun föstudag. Þetta er í 21. skipti sem ráðstefnan er haldin og er hún stærsta ráðstefna félagsvísinda á Íslandi. Í ár verður ráðstefnan með breyttu sniði og færist því öll dagskrá yfir á rafrænt form vegna breyttrar stöðu í samfélaginu. Þetta er því í fyrsta skipti sem almenningur mun geta tekið þátt í ráðstefnunni og fylgst með öllum málstofum heiman frá sér. Samtal við samfélagið mikilvægt „Fyrir nokkrum vikum síðan kom upp sú staða að við þurftum að taka ákvörðun út frá breyttu ástandi í samfélaginu og eru þetta viðbrögð okkar við því. Markmiðið var að ná að halda ráðstefnuna þar sem við væru öll saman í tíma og gætum átt samtal í skipulagðri dagskrá“ segir Stefán. Ráðstefnan er sem áður opin öllum þeim sem hafa áhuga á því að kynna sér málefni og rannsóknir líðandi stundar í félagsvísindum hér á landi. Stefán segir það vera stóran og mikilvægan part af störfum háskólans að eiga í samtali við samfélagið og miðla þekkingu út á við. Dagskrá Þjóðarspegilsins byrjar í fyrramálið klukkan 9:00 og verða allar málstofur nú aðeins aðgengilegar á netinu. Mynd - Kristinn Ingvarsson Það má líta á kosti þess að hafa þurft að fara í þær breytingar að hafa ráðstefnuna rafræna því jafnvel munum við ná betur til fólks með þessum hætti. Það er alltaf hópur sem af einhverjum ástæðum hefur ekki getað sótt ráðstefnuna í hús svo að þetta fyrirkomulag mun vonandi ná betur til almennings. Ráðstefnan ætluð fræðamönnum og almenningi Dagskrá Þjóðarspegilsins byrjar kl. 9:00 á morgun föstudag og stendur hún yfir til 16:45. Alls verða 52 málstofur í boði og því úr nægu að velja. Til að fylgjast með og taka þátt í málstofum er nóg að smella á nafn málstofunnar til að nálgast tengil á streymi og ágrip erinda. „Flestar málstofurnar verða í beinu streymi og svo er alltaf tími fyrir samtal og spurningar eftir hverja málstofu. Starfsfólk á Félagsvísindastofnun og á Félagsvísindasviði sá um skipulag ráðstefnunnar og hefur unnið frábært starf sem auðveldar þátttöku almennings en ráðstefnunni er einmitt ætlað að ná til fólks innan sem utan veggja háskólasamfélagsins.“ segir Stefán og bætir því við að hann vilji hvetja alla, fræðafólk og aðra, til að kynna sér fjölbreytt efni ráðstefnunar. Dæmi um áhugaverð erindi sem flutt verða á morgun eru: Ofbeldi í störfum lögreglu: ,,Það er í rauninni enginn séns að fá að vera mannlegur” Samskipti á tímum Covid-19 Neteinelti meðal unglinga á Norðurlöndum og áhrif þess á lífsánægju Áhrif Covid-19 á íslenskan tónlistariðnað Hvernig skipta foreldrar með sér umönnun barna á 21. öld
Félagsmál Skóla - og menntamál Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Fleiri fréttir Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Sjá meira