Bankasýslan sakar ríkisendurskoðanda um rangfærslur Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 6. desember 2022 07:23 Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslunnar, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar. Vísir Fulltrúar Bankasýslu ríkisins halda því fram að ríkisendurskoðandi hafi farið með rangt mál á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag þegar hann sagði Bankasýsluna hafa skort yfirsýn þegar ákvörðun um leiðbeinandi verð hafi verið tekin. Fundurinn í gærmorgun var fjórði opni fundur nefndarinnar sem haldinn er vegna sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Á fundinum sagði Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi Bankasýslu ríkisins ekki haft næga yfirsýn yfir heildareftirspurn þegar salan fór fram og að stofnunin hefði afhent fjármálaráðherra rangar og óljósar upplýsingar. „Ég veit ekki hvað vakir fyrir Bankasýslunni þegar hún gerir þetta, en ég segi það bara hér sem trúnaðarmaður Alþingis og sem Ríkisendurskoðandi að málflutningur Bankasýslunnar um þetta atriði er bara alls ekki við hæfi og eingöngu til þess fallinn að skapa upplýsingaóreiðu og afvegaleiða umræðu þings og almennings um hvað það var sem þetta mál snerist um,“ sagði Guðmundur Björgvin. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi.Vísir/Vilhelm Segir ríkisendurskoðanda fara með rangt mál Í tilkynningu frá Bankasýslunni sem send var út í gærkvöldi vegna málsins segir að ríkisendurskoðanda fari með rangt mál. Kemur þar fram að ákvarðanir um verð hafi verið byggðar á fullnægjandi upplýsingum og Bankasýsla ríkisins ítrekað bent Ríkisendurskoðun á að starfsmenn stofnunarinnar hafi náið fylgst með þróun tilboðsbókar allt frá upphafi til enda. „Ákvarðanir um leiðbeinandi verð og rökstutt mat til ráðherra um lokaverð og magn, sem honum var sent kl. 21:40 að kvöldi 22. mars 2022, byggðu á upplýsingum sem þá lágu fyrir um eftirspurn fjárfesta. Upplýsingarnar áttu eftir að taka breytingum. Heildarmyndin var hins vegar skýr og yfirsýn umsjónaraðila (Citigroup Global Markets Europe AG, J.P. Morgan SE og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka), Bankasýslu ríkisins og fjármálaráðgjafa stofnunarinnar (STJ Advisors Group Limited) góð,“ segir í yfirlýsingunni. Yfirlýsingu Bankasýslu ríkisins má lesa í heild sinni hér að neðan.
Fundurinn í gærmorgun var fjórði opni fundur nefndarinnar sem haldinn er vegna sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Á fundinum sagði Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi Bankasýslu ríkisins ekki haft næga yfirsýn yfir heildareftirspurn þegar salan fór fram og að stofnunin hefði afhent fjármálaráðherra rangar og óljósar upplýsingar. „Ég veit ekki hvað vakir fyrir Bankasýslunni þegar hún gerir þetta, en ég segi það bara hér sem trúnaðarmaður Alþingis og sem Ríkisendurskoðandi að málflutningur Bankasýslunnar um þetta atriði er bara alls ekki við hæfi og eingöngu til þess fallinn að skapa upplýsingaóreiðu og afvegaleiða umræðu þings og almennings um hvað það var sem þetta mál snerist um,“ sagði Guðmundur Björgvin. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi.Vísir/Vilhelm Segir ríkisendurskoðanda fara með rangt mál Í tilkynningu frá Bankasýslunni sem send var út í gærkvöldi vegna málsins segir að ríkisendurskoðanda fari með rangt mál. Kemur þar fram að ákvarðanir um verð hafi verið byggðar á fullnægjandi upplýsingum og Bankasýsla ríkisins ítrekað bent Ríkisendurskoðun á að starfsmenn stofnunarinnar hafi náið fylgst með þróun tilboðsbókar allt frá upphafi til enda. „Ákvarðanir um leiðbeinandi verð og rökstutt mat til ráðherra um lokaverð og magn, sem honum var sent kl. 21:40 að kvöldi 22. mars 2022, byggðu á upplýsingum sem þá lágu fyrir um eftirspurn fjárfesta. Upplýsingarnar áttu eftir að taka breytingum. Heildarmyndin var hins vegar skýr og yfirsýn umsjónaraðila (Citigroup Global Markets Europe AG, J.P. Morgan SE og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka), Bankasýslu ríkisins og fjármálaráðgjafa stofnunarinnar (STJ Advisors Group Limited) góð,“ segir í yfirlýsingunni. Yfirlýsingu Bankasýslu ríkisins má lesa í heild sinni hér að neðan. Vegna þess sem fram kom af hálfu ríkisendurskoðanda á opnum fundi Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag skal eftirfarandi komið á framfæri: Það er rangt sem ríkisendurskoðandi heldur fram að Bankasýslu ríkisins hafi skort fullnægjandi yfirsýn yfir stöðu tilboðsbókar þegar ákvörðun var tekin um leiðbeinandi verð og er rökstutt mat var sent ráðherra að kvöldi 22. mars 2022. Bankasýsla ríkisins hefur ítrekað bent Ríkisendurskoðun á að starfsmenn stofnunarinnar, fyrir milligöngu umsjónaraðila, hafi náið fylgst með þróun tilboðsbókar allt frá upphafi útboðsins til enda. Stöðu bókarinnar hafi reglulega verið varpað á skjá í höfuðstöðvum Íslandsbanka fram á kvöld þess dags er útboðið fór fram. Á þeim fimm klukkustundum sem útboðið stóð yfir var tilboða aflað fyrir rúmlega 150 milljarða króna. Það samsvarar um 30 milljörðum króna á klukkustund eða 500 milljónum króna á hverri mínútu að jafnaði. Ákvarðanir um leiðbeinandi verð og rökstutt mat til ráðherra um lokaverð og magn, sem honum var sent kl. 21:40 að kvöldi 22. mars 2022, byggðu á upplýsingum sem þá lágu fyrir um eftirspurn fjárfesta. Upplýsingarnar áttu eftir að taka breytingum. Heildarmyndin var hins vegar skýr og yfirsýn umsjónaraðila (Citigroup Global Markets Europe AG, J.P. Morgan SE og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka), Bankasýslu ríkisins og fjármálaráðgjafa stofnunarinnar (STJ Advisors Group Limited) góð. Endanleg staða tilboðsbókar og flokkun fjárfesta var síðan send ráðherra kl. 23:18. Á þeim grunni var ákvörðun ráðherra tekin og staðfest bréflega við Bankasýslu ríkisins kl. 23:27. Samkvæmt þessu er engum vafa undirorpið að ákvarðanir um verð í söluferlinu, sem allar voru teknar að fengnum tillögum umsjónaraðila útboðsins og með hliðsjón af ráðgjöf fjármálaráðgjafa Bankasýslu ríkisins, byggðust á fullnægjandi upplýsingum.
Vegna þess sem fram kom af hálfu ríkisendurskoðanda á opnum fundi Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag skal eftirfarandi komið á framfæri: Það er rangt sem ríkisendurskoðandi heldur fram að Bankasýslu ríkisins hafi skort fullnægjandi yfirsýn yfir stöðu tilboðsbókar þegar ákvörðun var tekin um leiðbeinandi verð og er rökstutt mat var sent ráðherra að kvöldi 22. mars 2022. Bankasýsla ríkisins hefur ítrekað bent Ríkisendurskoðun á að starfsmenn stofnunarinnar, fyrir milligöngu umsjónaraðila, hafi náið fylgst með þróun tilboðsbókar allt frá upphafi útboðsins til enda. Stöðu bókarinnar hafi reglulega verið varpað á skjá í höfuðstöðvum Íslandsbanka fram á kvöld þess dags er útboðið fór fram. Á þeim fimm klukkustundum sem útboðið stóð yfir var tilboða aflað fyrir rúmlega 150 milljarða króna. Það samsvarar um 30 milljörðum króna á klukkustund eða 500 milljónum króna á hverri mínútu að jafnaði. Ákvarðanir um leiðbeinandi verð og rökstutt mat til ráðherra um lokaverð og magn, sem honum var sent kl. 21:40 að kvöldi 22. mars 2022, byggðu á upplýsingum sem þá lágu fyrir um eftirspurn fjárfesta. Upplýsingarnar áttu eftir að taka breytingum. Heildarmyndin var hins vegar skýr og yfirsýn umsjónaraðila (Citigroup Global Markets Europe AG, J.P. Morgan SE og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka), Bankasýslu ríkisins og fjármálaráðgjafa stofnunarinnar (STJ Advisors Group Limited) góð. Endanleg staða tilboðsbókar og flokkun fjárfesta var síðan send ráðherra kl. 23:18. Á þeim grunni var ákvörðun ráðherra tekin og staðfest bréflega við Bankasýslu ríkisins kl. 23:27. Samkvæmt þessu er engum vafa undirorpið að ákvarðanir um verð í söluferlinu, sem allar voru teknar að fengnum tillögum umsjónaraðila útboðsins og með hliðsjón af ráðgjöf fjármálaráðgjafa Bankasýslu ríkisins, byggðust á fullnægjandi upplýsingum.
Salan á Íslandsbanka Íslandsbanki Íslenskir bankar Stjórnsýsla Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Segjast hafa skotið niður verðmæta sprengjuflugvél Erlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Fleiri fréttir Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Sjá meira