Vörubíll valt milli Selfoss og Hveragerðis

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Vörubíll valt á Suðurlandsvegi (1) rétt norðan við Kotströnd, milli Selfoss og Hveragerðis, á þriðja tímanum. Umferð til austurs er beint um veg 374, framhjá Sogni.

Ökumaður fékk aðhlynningu sjúkraflutningamanna og fluttur á HSU.

Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát þegar keyrt er á sömu slóðum, milli Selfoss og Hveragerðis, þar sem unnið er að breikkun hringvegarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert