Áhorfandi í lúxussæti ældi á völlinn og olli langri töf á NBA leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2021 12:30 Lyktin var ekki geðsleg og það tók langan tíma að þrífa upp eftir áhorfandann. Skjámynd/Youtube Þetta eru bestu sætin í íþróttunum og kosta líka sitt. Það er hins vegar algjört lykilatriði að fólk þekki sín takmörk eins og kom vel í ljós í NBA-deildinni í körfubolta um helgina.
Löng töf var á leik Sacramento Kings og Utah Jazz í NBA-deildinni eftir að mikið hreinsunarstarf þurfti að fara í gang þegar menn komust að því á óskemmtilegan hátt að einn stuðningsmaður Sacramento Kings liðsins hafði fengið sér aðeins of mikið. Leikmenn, þjálfarar og áhorfendur hafa líklega aldrei séð annað eins og þetta var ekkert sérlega geðslegt fyrir leikmenn Utah Jazz enda umræddur áhorfandi við hliðina á varamannabekknum þeirra. A Sacramento Kings fan sitting courtside by the Utah Jazz bench puked and caused a 25 minute delay pic.twitter.com/n8AI0Cyx0h— ClutchPoints (@ClutchPointsApp) November 21, 2021 Umræddur áhorfandi ældi á völlinn en það mátti allt í einu sjá leikmenn og starfsmenn Utah Jazz yfirgefa bekkinn sinn efir að gusan kom frá áhorfandanum. Á endanum þurfti að gera fimmtán mínútna hlé á leiknum á meðan starfsmenn hreinsuðu völlinn. „Þetta var eitthvað,“ sagði Quin Snyder, þjálfari Utah Jazz við staðarfjölmiðilinn KSL News í Salt Lake City. Þar kom einnig að áhorfandinn hafði verið að hreyta í þjálfarann allan leikinn. „Hann var að hrauna yfir mig allan leikinn eða alla vega fyrstu þrjá leikhlutana,“ sagði Snyder í gríni enda þurfti áhorfandinn að yfirgefa salinn eftir æluna. Jazz var fjórtán stigum yfir þegar þetta gerðist í upphafi fjórða leikhlutans. „Ég ætla ekki að reyna að ljúga. Ég einbeitti mér bara að því að forða mér frá bununni,“ sagði Donovan Mitchell, stjörnuleikmaður Utah Jazz. „Lífið er fullt af óvæntum atvikum. Ég vona að hann sé í lagi. Ég náði augnsambandi við hann og hann var brosandi. Hann var að brosa og æla á sama tíma,“ sagði franski miðherjinn Rudy Gobert. Starfsmenn hallarinnar fjarlægðu áhorfandann úr salnum og birtu síðan yfirlýsingu á skjánum um að allir of fullir áhorfendur yrðu reknir út húsi. Það má sjá myndir af þessu hér fyrir neðan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=iCZJeSQq4N0">watch on YouTube</a>
NBA Mest lesið Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Fleiri fréttir „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Oddaleikur í opinni dagskrá: Allt undir á Hlíðarenda Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Oddaleikur Vals og Njarðvíkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld „Þetta var rosalega heimsk villa hjá mér í endann“ Þruman jafnaði með góðum endaspretti og Boston einum sigri frá úrslitum Austursins „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins