Óbólusettur prestur smitaði fjölda barna í fermingarbúðum Smári Jökull Jónsson skrifar 5. desember 2021 13:38 Hér má sjá prestinn Helge Helgeson ásamt hópi fermingarbarna. Facebook / Kjøllefjord og Lebesby menigheter Óbólusettur prestur í Noregi dreifði ekki bara guðsorðum í fermingarbúðum sem hann vann við heldur smitaði hann fjölda fermingarbarna af kórónuveirunni.
Bærinn Lebesby í Finnmörku nyrst í Noregi hafði komist nokkuð vel í gegnum kórónuveirufaraldurinn og fá smit greinst í bænum þar sem tæplega 1300 manns búa. Þetta breyttist þó í nóvember en þá ruku smittölur upp eftir að hópsmit kom upp í fermingarbúðum. Einn einstaklingur greindist smitaður í bænum í byrjun nóvember en helgina 19.-21.nóvember voru áðurnefndar fermingarbúðir haldnar í nágrannabænum Mehamn þar sem fermingarbörn frá Lebesby voru meðal þátttakenda. Eftir búðirnar kom upp smit hjá um helmingi barnanna. Við búðirnar starfaði presturinn Helge Helgesen en hann reyndist smitaður af kórónuveirunni og hafði borið veiruna áfram. Helgesen fór í sýnatöku fyrir fermingarbúðirnar þar sem smit hafði greinst á skrifstofum ráðhúss bæjarins þar sem hann hefur vinnuaðstöðu. „Þess vegna fór ég í sýnatöku og sýnið reyndist neikvætt. Ég vildi vera viss áður en búðirnar hæfust,“ sagði Helgesen í samtali við VG í Noregi. Var óbólusettur Presturinn Helgesen hafði ekki fengið bólusetningu frá heilbrigðisyfirvöldum í Noregi.Vísir / Vilhelm Hann ákvað á sínum tíma að þiggja ekki bólusetningu þrátt fyrir hvatningu stjórnvalda. „Fyrir þá sem eru með veikt ofnæmiskerfi er gott að bólusetja sig og ég hef fullan skilning á því að þeir séu varkárir og vakandi vegna veirunnar. En fyrir mitt leyti hef ég ekki viljað bóluefni og nú er ég líka búinn að fá veiruna,“ bætir Helgesen við. Fermingarbörnin sem veiktust smituðu fjölskyldumeðlimi og í nóvember greindust um 30 smit í Lebesby. Yfirlæknir heilsugæslunnar í bænum segir að hann hefði viljað vera upplýstur um búðirnar áður en þær voru haldnar. „Ég vildi að ég hefði verið spurður áður en búðirnar voru haldnar, með tilliti til stöðu smita í bænum. Það var fremur óvarlegt að þessar búðir skyldu fara fram,“ segir yfirlæknirinn Marius Lier. „Að sama skapi er mikilvægt að benda á að presturinn fór í sýnatöku áður en búðirnar voru haldnar og þetta snýst ekki um að hann hafi brotið reglur.“ Presturinn Helgesen segir að læra þurfi af atvikinu. „Það er auðvelt að vera vitur eftir á en það er ekki mikið hægt að gera í þessu núna. Við munum eiga samtöl og meta atvikið ásamt foreldrum og fermingarbörnunum sjálfum.“
Noregur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Fleiri fréttir Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Sjá meira