Patrik ekki tapað leik og með tveimur liðum upp í einu: „Búið að ganga vonum framar“ Sindri Sverrisson skrifar 11. maí 2021 15:30 Patrik Sigurður Gunnarsson vel á verði í marki Silkeborgar. silkeborgif.com Patrik Sigurður Gunnarsson hefur átt algjört draumatímabil í Danmörku í vetur – ekki tapað leik og komið tveimur liðum upp í efstu deild. Hann bíður þess nú spenntur að sjá hvort að lið hans Brentford komist upp í ensku úrvalsdeildina.
Þrátt fyrir að spila í Danmörku er Patrik nefnilega leikmaður enska félagsins Brentford. Þessi tvítugi U21-landsliðsmarkvörður, EM-fari og uppaldi Bliki, fór að láni til Viborg í september og var þar fram til áramóta. Í febrúar sneri hann svo aftur til Danmerkur en þá til Silkeborg sem vantaði markvörð. Liðin tapað sjö leikjum en Patrik engum Silkeborg og Viborg hafa nú tryggt sér efstu tvö sæti dönsku 1. deildarinnar og Patrik ekki tapað einum einasta leik með liðunum, sem samtals hafa þó tapað sjö leikjum. „Það er frábært að vera búinn að ná þessu, auðvitað fyrst og fremst að komast upp með Silkeborg en líka að sjá gamla liðið mitt fara upp sömuleiðis. Þetta er skemmtilegt afrek og gaman að hafa verið hluti af þessu hjá báðum liðum,“ segir Patrik. „Þetta er búið að ganga vonum framar. Mér gekk virkilega vel hjá Viborg og skildi við liðið í toppsætinu. Síðan hefur gengið enn betur með Silkeborg og það er vonandi að maður geti klárað síðustu fjóra leikina eins vel. Ég held að ég sé örugglega sá eini í deildinni sem hefur ekki tapað og vonandi getur maður haldið það út, en við eigum erfiðan leik gegn Viborg á morgun. Vonandi vinnum við þann leik og tökum toppsætið af þeim,“ segir Patrik en Viborg er einu stigi á undan Silkeborg þegar fjórar umferðir eru eftir. Patrik er leikmaður Brentford en fór að láni til Danmerkur í vetur. Hann hefur spilað einn leik í næstefstu deild Englands, fyrir Brentford, og gerði það 18 ára gamall.Getty/Ker Robertson „Ágætlega mikið að gera“ Auk þess að hafa ekki tapað leik í vetur þá hefur Patrik haldið marki sínu hreinu í 14 af 24 deildarleikjum sem hann hefur spilað á leiktíðinni. Þar af hefur hann haldið markinu hreinu í 10 af 12 deildarleikjum með Silkeborg og átt ríkan þátt í félagsmeti. Patrik segir að það sé ekki vegna þess að það sé svo lítið að gera hjá sér: „Ég hef verið að leika mér að því að skoða tölfræðina og ég er alls ekki að fá mikið færri skot á mig en aðrir markverðir í deildinni. Það hefur verið ágætlega mikið að gera, sérstaklega eftir að deildinni var skipt upp, og ég hef fengið fleiri tækifæri til að hjálpa liðinu og sýna hvað ég get,“ segir Patrik. View this post on Instagram A post shared by Silkeborg IF (@silkeborgif_officiel) Talið berst að Brentford sem hafnaði í 3. sæti ensku B-deildarinnar og er því á leið í fjögurra liða umspil um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni. Eins og staðan er núna þá snýr Patrik aftur til Brentford í sumar þegar lánssamningur hans hjá Silkeborg rennur út: „Ég horfi á alla leiki félaga minna í Brentford sem ég get og það verður gaman að sjá hvað þeir gera í umspilinu. Ég hef trú á því að þeir komist upp í úrvalsdeildina. Þeir hafa alla vega hópinn í það og hafa staðið sig mjög vel undanfarið. Það væri virkilega gaman ef að Brentford kæmist í efstu deild,“ segir Patrik. En verður hann í leikmannahópi Brentford á næstu leiktíð? Veltur á því hvort að Brentford fer í úrvalsdeildina „Þetta veltur allt á því hvort að Brentford fer upp eða ekki. Ég geri ráð fyrir því að félagið vilji fá mig til baka þegar tímabilinu lýkur, setjast niður og fara yfir stöðuna. Það fer eftir því hvort liðið fer upp hvert hlutverk mitt verður á næsta tímabili,“ segir Patrik og veitir pólitískt svar um það hvort hann sé nálægt sæti í liði Brentford: „Á meðan að ég stend mig vel þá styttist þetta alltaf og styttist. Ég verð bara að halda áfram að gera eins vel og ég get. Ég er leikmaður Brentford og það er alltaf markmiðið að brjótast almennilega inn í liðið og spila reglulega þar. Ég hef klárlega aukið líkurnar á því með því að koma hingað til Danmerkur og spila svona vel,“ segir Patrik. Patrik átti stóran þátt í að koma Íslandi á EM U21-landsliða.Getty/Harry Murphy Klár þegar kallið í A-landsliðið kemur Patrik varði eins og fyrr segir mark Íslands á EM U21-landsliða í mars. Það styttist eflaust í það að hans gamli þjálfari í U21-liðinu, Arnar Þór Viðarsson, velji Patrik í A-landsliðið og spurning hvort það verði strax í þessum mánuði, fyrir vináttulandsleikina við Mexíkó, Færeyjar og Pólland. Arnar valdi þó aðra frekar í fyrsta verkefni sitt með A-landsliðinu, í undankeppni HM á sama tíma og EM U21 fór fram: „Ég talaði ekkert við Adda í mars og fannst bara augljóst að það væri best fyrir mig að klára þetta mót með U21-landsliðinu. Ég spilaði alla nema einn leik í undankeppninni og átti stóran þátt í því að liðið komst á EM, og vildi spila með liðinu á stórmóti. En ég veit það sjálfur að ég verð klár þegar kallið kemur frá A-landsliðinu og ég vona svo innilega að það komi fljótlega.“
Danski boltinn Enski boltinn Tengdar fréttir Lærði helling af pabbanum en er aðeins rólegri í skapinu en hann Um æðar Patriks Sigurðar Gunnarssonar rennur markvarðablóð en faðir hans stóð milli stanganna hjá liðum á borð við ÍBV, Fram og FH á árum áður. 11. mars 2021 11:00 Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira
Lærði helling af pabbanum en er aðeins rólegri í skapinu en hann Um æðar Patriks Sigurðar Gunnarssonar rennur markvarðablóð en faðir hans stóð milli stanganna hjá liðum á borð við ÍBV, Fram og FH á árum áður. 11. mars 2021 11:00