Solskjær ekki búinn að ákveða hvort Rashford fari í aðgerð á öxl Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. júlí 2021 09:01 Marcus Rashford hefur verið að spila þrátt fyrir meiðsli undanfarna mánuði. EPA-EFE/Frank Augstein Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, gæti verið frá þangað til í október fari hann í aðgerð á öxl. Rashford hefur verið að glíma við meiðsli undanfarna mánuði en Ole Gunnar Solskjær, þjálfari liðsins, segist ekki viss hvort Rashford fari í aðgerð áður en nýtt tímabil hefst.
Solskjær ræddi við blaðamenn um stöðuna á Rashford eftir 2-1 sigur Man United á Derby County í vináttuleik um helgina. Þau sem fylgdust með Manchester United á síðustu leiktíð – sem og enska landsliðinu á EM – vita að Rashford hefur ekki gengið heill til skógar í dágóðan tíma. Tímabilið 2019/2020 var hann einnig að glíma við erfið meiðsli í baki en þar sem enska úrvalsdeildin var sett á ís vegna kórónufaraldursins náði hann að jafna sig og klára tímabilið með Man United. Á síðustu leiktíð var hann að glíma við meiðsli á öxl sem og ökkla. „Við þurfum að taka þá ákvörðun sem er best fyrir hann. Við höfum ekki enn ákveðið hvað við eigum að gera varðandi meiðslin,“ sagði Solskjær um stöðuna á Rashford. Ljóst er að Rashford þarf að fara í aðgerð ef hann stefnir á að ná fullum bata, hvíld ein og sér dugir ekki til. Leikmaðurinn kemst hins vegar ekki í aðgerð strax og yrði frá fram í október ef hann færi undir hnífinn. Marcus Rashford: Manchester United striker to 'reflect' on possible shoulder surgery, says Solskjaer https://t.co/dwnjANM8do— Simon Stone (@sistoney67) July 18, 2021 Nú virðist sem Solskjær sé ekki alveg viss hvort það væri best fyrir Rashford – og Manchester United – að fara í aðgerð í sumar. Solskjær ræddi einnig framtíð Jesse Lingard að leik loknum. Leikmaðurinn var lánaður til West Ham United síðari hluta síðustu leiktíðar og stóð sig með prýði. „Jesse er leikmaður Man Utd. Hann vill berjast fyrir sæti í liðinu. Hann hefur komið sterkur til baka með mikla orku og mikið sjálfstraust. Hann er í áætlunum mínum,“ sagði Solskjær.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Sjá meira